Fundir og ráðstefnur
Skaftafell
Skaftafell (úr myndasafni)
Mynd Ragnar Th. Sigurðsson

Fundahöld og ráðstefnur

Í Ríki Vatnajökuls bjóðast margvíslegir möguleikar til fundar- og ráðstefnuhalda, hvort heldur eru fámennir fundir eða stórar ráðstefnur. Fundaraðstaða getur verið sérsniðin að þörfum hverju sinni til að óskum fólks og fyrirtækja sé fullnægt.

Nauðsynlegt er að brjóta upp stíf fundarhöld og halda út í náttúruna og njóta þess sem Ríki Vatnajökuls hefur upp á að bjóða, sem getur verið allt frá því að slappa af í heitum pottum til útsýnisferða á stærsta jökul Evrópu, Vatnajökul. Fjölmargir afþreyingarmöguleikar eru á svæðinu sem nýta má til skemmtunar fyrir fundargesti. Einnig er hægt að útbúa hópeflismiðaða afþreyingu, sérsniðna að þörfum hvers hóps fyrir sig.  Upplýsingar um afþreyingarmöguleika sem boðið er upp á er að finna hér .

Margvíslegir gistimöguleikar eru á svæðinu og jafnast fátt á að vera á hóteli eða gistiheimili með jöklasýn. Nokkurt úrval veitingastaða er í boði og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Upplýsingar um gistingu er að finna hér  og veitingar hér .

Samgöngur eru brýnn þáttur þegar ráðstefnur í Ríki Vatnajökuls eru annars vegar. Flugsamgögnur eru tíðar til Hafnar í Hornafirði og stærð hópa ekki vandamál. Reglulegar áætlunarferðir með rútum eru einnig á svæðið.  Stórir og smáir hópferðabílar eru í boði sem og bílaleigubílar. Fólk ætti því ekki að vera í neinum vandræðum að komast á sinn fund eða ráðstefnu eða njóta þess sem svæðið hefur upp á að bjóða. Hægt er að finna upplýsingar um samgöngur hér.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica