Fréttir
Ferðaþjónustan á Suðurlandi bjartsýn á framhaldið
Ferðaþjónustuaðilar á Suðurlandi eru bjartsýnir um framhaldið þrátt fyrir erfiðleika undanfarinna daga, enda hefur dregið verulega úr gosinu og merki eru um að því sé jafnvel lokið.
Færð og skyggni eru að lagast og hringvegurinn milli Víkur og Freysness hefur verið opnaður. Markaðsstofa Suðurlands hvetur þá sem ætla að ferðast um Suðurland á næstu dögum og í sumar að fylgjast með fréttum næstu daga og afla sér upplýsinga áður en ferðaáætlunum er breytt.
Mikið hefur dregið úr gjóskuframleiðslu og öskufall er nú á afmörkuðu svæði. Rangárþing, Suðurströndin, Mýrdalurinn og uppsveitir Árnessýslu eru að mestu laus við ösku. Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ríkis Vatnajökuls, sem er ferðaþjónustu-, menningar- og matvælaklasi Suðausturlands, segir nokkurt öskufall hafa verið í upphafi gossins en það sé nú að mestu horfið, veður sé fallegt og græni liturinn allsráðandi á túnum á ný. "Ferðaþjónustuaðilar taka þessu með jafnaðargeði enda eru þeir vanir nábýli við náttúruna og kunna bæði að takast á við hana og njóta hennar."
Búið er að undirbúa sumarið vel og á svæðinu í kringum Klaustur hefur gistirými verið aukið mikið frá því á síðasta ári. Ferðaþjónustan býður upp á ýmsa afþreyingu og er tilbúin til að taka á móti ferðamönnum og aðstoða við ferðir og skipulagningu þeirra.
Davíð Samúelsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands: "Það er því engin ástæða fyrir fólk sem ætlar að ferðast um Suðurland að afbóka, en við hvetjum fólk til að fylgjast með fréttum og afla sér upplýsinga."
Hægt er að nálgast upplýsingar um stöðuna á Suðurlandi hjá Upplýsingamiðstöð Suðurlands í Hveragerði í síma 483 4601m Upplýsingamiðstöð ferðamanna á Hvolsvelli í síma 487 8043 og Upplýsingamiðstöð ferðamanna á Höfn í síma 478 1500.

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


