Fréttir

Ólíklegt að gosið hafi sömu áhrif og gosið í Eyjafjallajökli í fyrra

23.05.2011

Hiking
Hiking
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson

Markaðsstofa Suðurlands hvetur þá sem ætla að ferðast um Suðurland á næstu dögum og í sumar að fylgjast vel með fréttum af framvindu gossins áður en ferðaáætlunum er breytt. Þrátt fyrir að gosið í Grímsvötnum sé stórt bendir ýmislegt til þess að það sé að minnka, auk þess sem gos i Grímsvötnum standi venjulega stutt.  Margt getur því breyst á stuttum tíma.

Ólíklegt er að gosið nú hafi sömu áhrif og gosið í Eyjafjallajökli í fyrra, þrátt fyrir að það hafi verið mjög öflugt í byrjun. Askan í gosinu er þyngri en í Eyjafjallajökli og því ekki útilokað að hún dreifist minna en spár gera ráð fyrir. Reikna má með að á fjórða degi dragi verulega úr gosinu, sé miðað við fyrri eldgos. 

Davíð Samúelsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands.: „Svo virðist sem gosið sé nú þegar í rénun og reynslan hefur sýnt okkur að gos í Grímsvötnum séu yfirleitt stutt, þó auðvitað sé ómögulegt að segja til  um það með vissu. Við hvetjum því fólk sem ætlar að ferðast um Suðurland að fylgjast með fréttum næstu daga og afla sér upplýsinga áður en það tekur ákvörðun um að breyta áætlunum sínum.“

Hægt er að nálgast upplýsingar um stöðuna á Suðurlandi hjá Upplýsingamiðstöð ferðamanna á Höfn í síma 478 1500 og hjá Upplýsingamiðstöð ferðamanna á Hvolsvelli í síma 487 8043.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica