Fréttir
Suðurland já takk
Landshlutasýningin „Suðurland já takk“ verður haldin í Ráðhúsinu í Reykjavík dagana 18. – 21. mars og gefst fyrirtækjum og stofnunum í Hornafirði kostur á að kynna starfsemi sína þar.
Markaðsstofa Suðurlands, Atvinnuþróunarfélag Suðurlands og Menningarsamningur Suðurlands standa fyrir sýningunni og er markmiðið fyrst og fremst að kynna framleiðslu og þjónustu á Suðurlandi. Sýningin á að höfða til fagaðila og neytenda sem kaupa og nýta sér framleiðslu og þjónustu af svæðinu.
Fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að taka þátt í sýningunni og eiga þannig þátt í að gera landshlutann sem sýnilegastan.
Þátttökukostnaður er 18.000 pr. fyrirtæki og verður sýningarsvæðið skipulagt með þátttökuaðilum. Þau fyrirtæki sem hafa áhuga á þátttöku hafi vinsamlegast samband við Davíð Samúelsson hjá Markaðsstofu Suðurlands, davidsam@south.is 483 5555 eða Steingerði Hreinsdóttur hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands, steingerdur@sudur.is 480 4212.

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


