Fréttir

Vel heppnað víðavangshlaup í Skaftafelli

25.05.2010

Hlaupið yfir Skeiðarárbrú
Hlaupið yfir Skeiðarárbrú
Mynd 3 af 4
1 2 3 4

 

Skeiðarárhlaup fór fram um helgina og tóku 20 keppendur þátt í þessu fyrsta víðavangshlaupi í Skaftafelli. Hlaupið var samstarfsverkefni  Ríkis Vatnajökuls, ungmennafélagsins Sindra og Vatnajökulsþjóðgarðs. Styrktaraðilar voru Icelandic Glacial water, Dimms design og Eimskip-Flytjandi. Meðlimir í Björgunarsveit Hornafjarðar, Björgunarsveitinni Kára, sjálfboðaliðar UST og einstaklingar hjálpuðu til við framkvæmd hlaupsins og fá þeir allir kærar þakkir fyrir óeigingjarnt starf.

Fyrstir í mark voru:

8 km karla
1. Einar Ásgeir Ásgeirsson – 33.03
2. Sigurður Pétur Jónsson – 40.57
3. Klaus Kretzer – 41.57

8 km kvenna
1. María Birkisdóttir – 40.41
2. Jóhanna Benediktsdóttir – 47.40
3. Jóna Þormóðsdóttir – 49.06

16 km karla
1. Benedikt Jónsson – 1:12.17
2. Miralem Haseta – 1:13.06
3. Guðlaugur Ingi Guðlaugsson – 1:18.43

16 km kvenna
1. Sólveig Guðlaugsdóttir – 1:35.43
2. Anna Kristín Sigurpálsdóttir – 1:36.26
3. Jóna Björk Jónsdóttir – 1:37.47

Verðlaunabikarar voru afhentir fyrir fyrstu þrjú sæti í hverjum flokki og allir þátttakendur voru leystir út með verðlaunapening. Keppnisnúmer giltu jafnframt sem happdrættisnúmer og voru vinningar ekki af verri endanum. Öræfaferðir gáfu ferð fyrir tvo í Ingólfshöfða, Jökulsárlón gaf siglingu fyrir tvo, Íslenskir fjallaleiðsögumenn gáfu jöklagöngu fyrir tvo og Jöklamenn gáfu ferð á Hvannadalshnúk.

Keppendur á báðum leiðum voru almennt ánægðir með þá leið sem hlaupin var. Leið þeirra lá yfir lengstu brú landsins og á varnargarði að Skaftafellsbrekkum. Keppendur á lengri leiðinni kræktu inn í Morsárdal og yfir Skaftafellsheiði, en báðar leiðir enduðu við Skaftafellsstofu. Er mál manna að full ástæða sé til að endurtaka leikinn.

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica