Fréttir
Skeiðarárhlaup um Hvítasunnuna
Um hvítasunnuhelgina, nánar tiltekið laugardaginn 22. maí, verður efnt til víðavangshlaups í Skaftafelli. Hlaupnar verða tvær vegalengdir, 16 km og 8 km. Einnig gefst krökkum 12 ára og yngri tækifæri til að hlaupa lokasprett styttri leiðarinnar og taka þannig þátt í því sem þeir eldri eru að gera.
Viðburðurinn er samstarfsverkefni íþróttafélagsins Ríkis Vatnajökuls, íþróttafélagsins Sindra og Vatnajökulsþjóðgarðs. Styrktaraðilar eru Icelandic Glacial water, Flytjandi og Dimms design segir Rósa Björk framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls. Það er kominn tími til að gera eitthvað skemmtilegt á þessum síðustu og verstu tímum, það er búin að vera allt of neikvæð umræða vegna öskufalls og eldgossins í Eyjafjallajökli. Aðstandendur hlaupsins vonast eftir góðri hjálp og þátttöku heimamanna. Guðmundur Ögmundsson aðstoðarmaður þjóðgarðsvarðar sá um að velja leiðirnar, mæla þær og stika en hann sér jafnframt um framkvæmdina í Skaftafelli. Íþróttafélagið Sindri og Björgunarsveit Hornafjarðar ætlar að sjá um mannaflann. Hlaupið hefur verið auglýst á sérstakri heimasíðu hlaupara um nokkurt skeið og von er á einhverjum hlaupurum á svæðið. Ef þetta tekst vel vonumst við til að þetta verði fastur viðburður um Hvítasunnuhelgina sem mun vaxa og dafna, jafnvel verða að hálfu eða heilu maraþoni. Hlauparar víðs vegar um heiminn leggja oft á sig mikið ferðalag til þess að taka þátt í hlaupum sem þessum, því erum við sannfærð um að það verður vinsælt að hlaupa í þeirri náttúrufegurð sem er í Skaftafelli og nágrenni í framtíðinni. Nánari upplýsingar er að finna hér (pdf)

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


