Fréttir
Málþing um hreindýr
Í dag hefst málþing um hreindýr í tengslum við Vetrarhátíð í Ríki Vatnajökuls, það er öllum opið og er fólki velkomið að sitja hluta þess. Málþingið hefst klukkan 10:30 en mörg áhugaverð erindi verða á dagskránni.
Fyrirlestrum og pallborðsumræðum lýkur 15:30 en þá verður boðið uppá óvissuferð.
Málþingið ber yfirskriftina Óður til hreindýrsins. Markmiðið er að fræðast almennt um hreindýrin og greina þau tækifæri sem felast í þessari auðlind sem hreindýrin eru. Leitast verður við að málþingið verði þverfaglegt og varpi ljósi á flesta þá þætti sem tengjast hreindýrum, eins og ferðaþjónustu, handverk, mat úr héraði, skotveiði og aðgengi að veiðilendum. Um kvöldið verður svo viðeigandi matur úr héraði á borðum á Hótel Höfn en þar verður einnig frumflutt skemmtiatriði sem ber heitið Óður til hreindýrsins. Það er tónlistamaðurinn Charles Ross sem semur og flytur verkið.
Hönnuðir og handverksfólk sem eru að vinna úr hreindýrahorni eða skinni munu sýna og selja afurðir sínar í Miðrými Nýheima. Þá mun Kristbjörg Hjartardóttir kynna Hollvinasamtökin Vini Vatnajökuls sem hafa það að markmiði að styðja við uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs en samtökin hafa styrkt útiljósmyndasýningar á Vetrarhátíð Ríki Vatnajökuls dyggilega og gert þær að veruleika. Málþingið er einnig styrkt af Need verkefninu sem Háskólasetrið á Hornafirði stýrir og Menningarráð Austurlands styrkti Vetrarhátíðina í heild sinni.
Hér er hægt að nálgast dagskránna
Dagskrá (pdf)

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


