Fréttir
Úti-ljósmyndasýning opnar á Jökulsárlóni
Opnun úti-ljósmyndasýningar á Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi á morgun sunnudag kl:14:00. Það er hinn eini sanni hirðljósmyndari Ríki Vatnajökuls, Ragnars Th. Sigurðsson sem opnar sýninguna ,,Vatnajökull´´ sem er hluti af dagskrá Vetrarhátíðar í Ríki Vatnajökuls.
Stærðarinnar ljósmyndarammar voru fluttir frá Reykjavík til þess að hengja þessar stóru myndir utaná enstærð ljósmyndanna er 190 að breidd og 140 á hæðina.
Það má segja að Ragnar Th. sé sannkallaður hirðljósmyndari Ríki Vatnajökuls, Vatnajökull er í miklu uppáhaldi hjá honum og konunni hans henni Ásdísi en þau vinna saman í fyrirtæki þeirra Arctic Images. Á sýningunni má finna 20 sérvaldar myndir Ragnars af Vatnajökli og hefur þeim verið komið fyrir austan megin við lónið sjálft. Sýningin mun standa yfir í einn mánuð eða fram yfir páskana.
Hluti rammanna fór inn í Hoffell þar sem Þorvarður Árnason Umhverfisfræðingur og ljósmyndari mun opna sýningu í næstu viku, sú sýning ber heitið Hopun jökla en Þorvarður hefur fylgst náið með breytingum á Hoffellsjökli síðustu hin ár. Það má enginn missa af þessum sýningum í þessu magnaða umhverfi.
Ég vil þakka sérstaklega styrktaraðilum verkefnisins segir Rósa Björk framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls en þeir eru, Hollvinasamtökin Vinir Vatnajökuls, Kask sem sá um flutning myndastólpanna frá Reykjavík en hver rammi vegur um eitt tonn, Rósaberg ehf. en þeir sáu um að koma myndarömmunum fyrir. Í Reykjavík þurfti einnig að koma römmunum fyrir á einum stað og koma þeim á flutningavagn Kask en þar kom Vélaleiga Ámunda sterk inn. Menningarráð Austurlands styrkja Vetrarhátíðina um 400.000.- og verða þeir fjármunir notaðir í auglýsingar og almenna kynningu á hátíðinni.
Um þessa Blúshelgi eru einnig fjölmargar sýningar í boði, Hanna Jóns í Pakkhúsinu, Gingó í Kartöfluhúsinu, skemmtileg samsýning í Miklagarði, Nanný hefur opnað nýja sýningu á Hótel Höfn en einnig verður opnuð áhugaljósmyndasýning á efri hæð Pakkhússins á morgun sunnudag viðburðir Rósa hvetur að lokum alla til þess að kynna sér þá fjölmörgu viðburði sem í boði eru:

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


