Fréttir
Ísklifurfestival í Öræfum um helgina, Vetrarhátíð í ríki Vatnajökuls
Frá árinu 1998 hefur Íslenski alpaklúbburinn (Ísalp) staðið fyrir árlegri samkomu, svokölluðu ísfestivali, þar sem ísklifrarar landsins hittast og klífa frosna fossa og lækjarsprænur.
Klifursamkomur sem þessar eru að erlendri fyrirmynd og hafa allnokkrar þeirra fest sig í sessi í klifurheiminum. það sem einkennir Ísfestival Ísalp er sú staðreynd að hátíðin er sjaldnast haldin á tvisvar sinnum á sama staðnum heldur er fundin ný staðsetning ár frá ári. Ástæðan fyrir því er ekki, eins og margir gætu haldið, að leitin að besta svæðinu standi enn yfir. Þvert á móti þá erum við svo rík af ótrúlegum staðsetningum að leitast hefur verið við að halda á ísfestivalið á nýjum stöðum, það er á stöðum sem fáir eða engir hafa klifið á áður.
Það er ólíkt öðrum tilfinningum að fara á staði þar sem enginn hefur áður farið.
Sú tilfinning líður mönnum seint úr minni.
Þar að auki fá þeir sem frumfara klifurleiðir þann heiður að nefna leiðir nafni sem þær halda um ókomna tíð. Þannig skrifa klifrarar nöfn sín á spjöld fjallamennskusögunnar þegar þeir fara leiðir sem enginn annar hefur farið. Sú saga er enn í vinnslu og er vandlega skráð af Íslenska alpaklúbbnum. Nýr kafli verður skrifaður í þessa glæsilegu sögu í Öræfunum um helgina.
Veðurspáin er þannig að ekki er fyrirséð hvar nákvæmlega hópurinn verður að klifra hverju sinni en hægt er að fylgjast með þeim leiðum sem verða klifraðar hér.
Formaður Ísalp
Freyr Ingi Björnsson

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


