Fréttir

Vetrarhátíð í Ríki Vatnajökuls

24.02.2010

Þéttsetið
Þéttsetið

Nú fer af stað í fyrsta skipti Vetrarhátíð í Ríki Vatnajökuls. Þema hátíðarinnar er ferðalag og  hefst með Ísklifurhátíð ÍSALP í Öræfunum nk. föstudag og stendur í tvo daga. Viðburðir verða í boði frá 26. febrúar og fram yfir páska. Hefð er komin á suma viðburðina eins og Norðurljósablús.

Gingó opnar sýna fyrstu einkasýningu á skúlptúrum en einnig kemur ljóðlist við sögu. Á sýningunni Ljóðaljós Draumsýn gefur að líta 11 verk.  Sjálf lýsir listakonan sýningunni sem Ljóðaljós með ljósskúlptúrum og ljóðalestri í anda-draumaheimi og gestum er boðið að vera þátttakandur í þessum undraheimi í sal Kartöflugeymslunnar.
Hanna Jónsdóttir verður með sýninguna Héðan á neðri hæð Pakkhússins 5. - 7. Mars. Nálgun hennar á rými birtist skemmtilega í verkinu Þéttsetrið sem hún sýnir  utandyra. Sömuleiðis mun hún sýna úrval verka á neðri hæð Pakkhússins.
Svavar Jónatansson frumsýnir í Kaupfélagshúsinu 17. mars ólíka sýn á landslag Íslands, afrakstur tveggja ára keyrslu, þar sem landið fær líf og líður framhjá áhorfendum í öllum sínum fjölbreyttu búningum árstíða og birtu. Óslitin hreyfimynd sýnir landslag þjóðvegarins út um hliðarrúðu. Þessi samhæfing myndbands og ljósmynda veitir hreina og hlutlausa heimild um land, og opnar gáttir þess tímaleysis sem náttúran býður upp á.
Áhugaljósmyndasýning verður opnuð í Pakkhúsinu 7. mars og stendur út mánuðinn. Þemað í ár er „Ríki Vatnajökuls“. Allt sem tengist svæðinu okkar á einhvern hátt getur verið myndefni, hvort sem það er landslag, mannlíf, dýralíf o.s.frv.
Vetrargleði verður í Þorbergssetri föstudaginn 12.mars þar sem verður boðið uppá léttar veitingar úr héraði. Einnig munu þau hjónin á Hala vera með Söguslóðaferð um svæðið. Farin verður dagsferð um merktar söguslóðir á Suðausturlandi en verkefnið var unnið af mörgum samstarfsaðilum s.s. Þorbergssetri, Öræfaferðum, Vatnajökulsþjóðgarði, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Djúpavogshrepp og Ríki Vatnajökuls.
Samsýning verður í Miðgarði 23. Hafþór Bogi Reynisson verður með ljósmyndasýningu, Jón Bjöss ljósmyndir og sandlistmuni og Daníel Imsland með blandaða miðlun m.a. grafískar myndir.
Tvær útiljósmyndasýningar verða á svæðinu. Á Breiðamerkursandi verður Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndari með sýningu sem ber heitið Vatnajökull. Í Hoffelli verður Þorvarður Árnason umhverfisfræðingur með sýningu sem ber heitið „Hlýnun“ og sýnir þær breytingar sem orðið hafa á jöklinum.
Að lokum verður málþing um hreindýr á Íslandi þar sem verða fyrirlestrar, óvissuferð og matur úr héraði. Tilgangur málþingsins er auk fræðslu að greina þau tækifæri sem felast í auðlindinni og verður hönnuðum og handverksfólki boðið að sýna afurðir sínar.

Ég hvet alla heimamenn til þess að skoða og taka þátt í sem flestum viðburðum. Ef vel tekst til verður stefnt á að halda Vetrarhátíðina árlega.

Sjá dagskrá á PDF hér


Rósa B. Halldórsdóttir
framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls.

 

Hér er hægt að nálgast auglýsingu um viðburði (Auglýsing pdf 700kb).

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica