Fréttir

Gistiheimilið á Hala og Þórbergssetur eru opin allt árið

18.01.2010

Hvalur og Hali
Hvalur og Hali

 

Vetrarferðamennska í Ríki Vatnajökuls er eitthvað sem er heillandi viðfangsefni að fást við. Gistiheimilið á Hala er opið allt árið og þangað eru að koma erlendir ferðamenn yfir vetrartímann og dvelja í lengri eða skemmri tíma.   Ýmis félagasamtök og hópar hafa einnig dvalið yfir helgi eða haldið eigin samkomur í Þórbergssetri. Samtök um sögutengda ferðaþjónustu héldu árlegan félagsfund sinn um nýliðna helgi í Þórbergssetri en Þórbergssetur er aðili að þeim samtökum. Það voru 38 aðildarfélagar  sem sátu fundinn víðs vegar af að landinu og opið málþing samtakanna var fjölsótt af heimamönnum. Þar var m.a. kynnt matarmenning, söguslóðarverkefni og fornleifargröftur í Ríki Vatnajökuls og etinn matur úr héraði af hjartans lyst.

Boðið er upp á sérstakar helgarferðir að Hala í Suðursveit á þessum vetri fyrir stofnanir og starfsmannahópa eða hverja þá sem langar að taka sér smá helgarfrí og njóta fræðslu og skemmtunar í notalegu umhverfi. Þórbergssetur stendur fyrir öflugu menningarstarfi sem tengist sögu og bókmenntum og hefur nú unnið upp allmikið af fræðsluefni um héraðið sem hægt er að miðla til gesta.  Náttúran í vetrarríki er allt um kring og stutt að skreppa að Jökulsárlóni og heilsa upp á selina þar, ganga inn að Breiðamerkurjökli, fara á fjöru eða inn til fjalla og skoða sig um.  Frekari upplýsingar um helgarpakka eða vetrardvöl á Hala í Suðursveit og dagskrá í Þórbergssetri er að finna inn á vefnum www. thorbergur.is

 

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica