Fréttir
Jólagjafaöskjur með afurðum úr ríki Vatnajökuls
Nú hafa afurðaframleiðendur sett á markað Jólaöskjur með afurðum svæðisins, þetta eru vörur sem henta í jólamatinn sem í jólaboðin. Hægt er að gera góð kaup því öskjurnar eru niðurgreiddar af framleiðendum sjálfum. Jólaöskjurnar eru einnig tilvaldar til að gefa vinum og ættingjum víðs vegar eða fyrir fyrirtæki að gefa starfsmönnum sínum.
Jólaöskjurnar verða til sölu á heimamarkaðinum í Pakkhúsinu á laugardaginn, einnig er hægt að panta körfur hjá Rósu Björk í síma 896-7084.
Um er að ræða tvær tegundir af öskjum sem innihalda kælivörur, til dæmis inniheldur stór jólaaskja heitreykta andabringu frá Hlíðarbergi, þar er einnig grafin gæs, heitreyktur makríll og makrílmyrja frá Unnsteini og Ómari Franz, grafið lamb frá Smyrlabjörgum, reyktur áll og lúra frá Ara og Tobbalingunum, rauðlauksulta frá Ingólfi á Kaffi Horninu, Pestó og kartöflukonfekt frá Hólabrekku, sólberjasulta frá Dilksnesi og svo er nýja bókin hans Halldórs matreiðslumanns Réttir úr Ríki Vatnajökuls einnig með bæði stærri körfunni og þeirri minni en hún er einnig töluvert niðurgreidd og kostar stór karfa aðeins 9.800.- krónur og sú minni 6.800.- kr. í henni er grafið lamb, heitreykt andabringa, reyktur makríll, makrílmyrja, rauðlaukssulta, kartöflukonfekt og sólberjasulta. Þá er Jón bakari að þróa nýtt rúgbrauðskex sem verður í báðum kæliöskjunum.
Einnig eru tvenns konar jólaöskjur með frostvöru, í þeim er forréttur, aðalréttur og eftirréttur. Í báðum er humar frá Skinney-Þinganes og jóla-Jöklaís frá Árbæ en annars vegar er aðalrétturinn heil önd frá Hlíðarbergi og hinsvegar Bæjónskinka frá Miðskeri og er verðið á þeim: 5.700.- með Bæjónskinkunni en 6.800.- með heilli önd.
Tilvalið að koma á markaðinn, gera góð kaup og styðja við svæðisbundna framleiðslu, það verður sannkallaður jólamarkaður segir Rósa Björk hjá Ríki vatnajökuls.
![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


