Fréttir

Velheppnað haustþing Ríkis Vatnajökuls

29.10.2009

Haustþing Ríkis Vatnajökuls
Haustþing Ríkis Vatnajökuls
Möllers æfingar
Mynd 1 af 3
1 2 3

 

Ferðaþjónustu, matvæla og menningarklasinn Ríki Vatnajökuls í samstarfi við Háskólasetur á Hornafirði stóð fyrir opnu málþingi í Nýheimum á Höfn 21.-22. október 2009. Umfjöllunarefnið var umhverfis- og skipulagsmál í ferðaþjónustu á Íslandi og var málþingið opið öllum.

Um 60 manns sátu málþingið og voru erindin bæði brýn og áhugaverð í ljósi mikillar aukningar á komu ferðamanna, að meirihluti þeirra kemur hingað í náttúruskoðun og að við erum að markaðssetja okkur í stærsta þjóðgarði Evrópu.

Málþingið var tvískipt þar sem fyrri daginn var horft til ferðaþjónustunnar á landinu í heild sinni og gæði umhverfis- og skipulagsmála rædd. Frummælendur komu úr ýmsum áttum og má þar m.a. nefna Sigmund Davíð Gunnlaugsson skipulagshagfræðing, Sveinn Rúnar Traustason  umhverfisfulltrúa Ferðamálastofu sem ræddi um stöðlun, vottun og skipulag ferðamannastaða, þá kynnti Egill Guðmundson arkitekt samstarfsverkefni arkitektastofunnar Arkís, Náttúrulega og Ríki Vatnajökuls sem ber heitið Vistvænir áningastaðir og lýtur að því að koma upp þurrklósettum og sorpgeymslum á vinsælum áningastöðum í sátt við náttúruna. Rósa Björk framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls mun á næstu misserum kynna verkefnið fyrir landeigendum og ferðaþjónustuaðilum.

Einnig var haldin uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Hótel Höfn á miðvikudagskvöldinu, áhersla var á mat úr héraði og var matseðillinn glæsilegur að vanda. Í hádeginu var farið á Kaffihornið og ráðstefnugestum boðið uppá humarsúpu í boði sveitafélagsins, eftir matinn voru ráðstefnugestir fengnir til þess að fá sér ferskt loft þar sem Þorbjörg Arnórsdóttir frá Hala leiddi gesti í gegnum nokkrar Möllers æfingar að hætti Þórbergs Þórðarsonar

Hægt er að sjá fleiri myndir af þinginu hér.

Fyrirlestrana af þinginu er að finna hér á need.is (pdf)

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica