Fréttir

Söguhelgi á Suðausturlandi – Opnunarhátíð Söguslóðar á Suðausturlandi

01.06.2009

Séð til lands úr Papey
Séð til lands úr Papey

 

Söguslóð á Suðausturlandi verður opnuð formlega helgina 6. og 7. júní næstkomandi. Um er að ræða verkefni sem unnið hefur verið í samvinnu fjölmargra aðila á svæðinu frá Djúpavogi að Skaftafelli.
Ferðafólki gefst nú kostur á að ferðast eftir merktri söguslóð allt frá Berufirði og út á Skeiðarársand. Einnig verða settar upp tvær nýjar sögusýningar í Löngubúð og á Þórbergssetri sem fjalla um mannaferðir og fyrstu búsetu manna á svæðinu, papa, landnámið og tengingar íbúa Suðausturlands við höfðingjaættir á Norðurlöndum á fyrstu öldum Íslandsbyggðar. Dagskrá verður á Djúpavogi 6. júní þar sem Marteinn H Sigurðsson norrænufræðingur fjallar um Papa og Papaörnefni í Vestur Evrópu og Þorvaldur Friðriksson fréttamaður um keltnesk áhrif á Íslandi. Siglt verður út í Papey og söguslóðir þar kannaðar. Daginn eftir 7. júní verður sama dagskrá flutt í Þórbergssetri og farið í ferðalag í Papbýli í Steinadal að skoða þar ævafornar fornleifar sem fundust fyrir nokkrum árum og sanna búsetu þar fyrir árið 1000.

Í allt sumar verður síðan hægt að koma við á öllum helstu ferðamannastöðum á Suðausturlandi  og nálgast bækling um söguslóðina.. Síðan er bara að leggja af stað, njóta fræðslu á hverjum stað, ýmist af fræðsluskiltum úti í náttúrunni eða með heimsóknum á söfn, sýningar og í gestastofur .

Allir eru velkomnir á opnunarhátíð í Löngubúð og Þórbergssetri, en panta þarf sérstaklega í ferðina í Papey kl 14:00 laugardaginn 6. júní.

Dagskránna má nálgast hér.

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörg Arnórsdóttir í síma: 478 1078.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica