Fréttir

Vorið í Suðursveit nú um helgina

16.05.2009

Vorið í ríki Vatnajökuls
Vorið í ríki Vatnajökuls

Ferðaþjónustuaðilar í Suðursveit munu bjóða upp á fjölbreytta dagskrá nú um helgina, þar verður þjónusta þeirra kynnt fyrir heimafólki. Jökulsárlón sunnudagur, boðið verður upp á bátasiglingu um Jökulsárlónið fyrir heimamenn eftir kl. 17: 00. Verð einungis kr.1000.- fyrir fullorðna en frítt fyrir börn yngri en 12 ára. Lækjarhús Útilistaverk og lambaskoðun í Lækjarhúsum í Borgarhöfn.
Þórbergssetur Þar verða opnaðar tvær nýjar sýningar undir heitinu Saga og list laugardaginn 16. maí.
Sagnalist, fermingarsögur, munir og myndir frá liðinni tíð opnar kl 13:30
Konan í forgrunni, vegferð í lífi og list, málaverkasýning Öldu Ármanna frá Barðsnesi, opnar klukkan 14:00
Á sunnudeginum verður kaffihlaðborð kl. 14-17 í Þórbergssetri.
Vagnstaðir: Farfuglaheimilið á Vagnstöðum – Fuglaskoðun og kaffi á könnunni
Smyrlabjörg - Glæsilegt hlaðborð á Laugardagskvöldið frá kl: 18.  Allt úr héraði
Báða dagana verður hægt að skoða lömb á Smyrlabjörgum og á sunnudeginum verður kaffihlaðborð frá kl: 14, þarf ekki að panta.
Skálafell býður gestum upp á gönguferð að jökli kl 14 á laugardag, með leiðsögn, á vægu verði kr. 500.- pr. mann. Hægt er að kíkja á sauðburðinn og kynna sér þjónustuna. Kaffi á könnunni báða dagana frá kl: 10-17.
Bregðum nú undir okkur betri fætinum og njótum þess sem er í boði í heimabyggð.
Allir eru velkomnir í sveitina

 - Ríki Vatnajökuls og Ferðaþjónustuaðilar í Suðursveit

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica