Fréttir
Rjúpnatalningar í Skaftafelli
Rjúpur hafa verið taldar í Skaftafelli á hverju vori frá árinu 1999. Þessar talningar eru hluti af verkefninu “vöktun rjúpnastofnsins” sem Ólafur K. Nielsen hjá Náttúrufræðistofnun Íslands hefur umsjón með. Talningasvæðin eru um 40 víðsvegar um landið og næsta talningasvæði við Skaftafell er á Kvískerjum þar sem Hálfdán Björnsson hefur talið rjúpur frá 1963. Tilgangurinn með verkefninu er að fá stofnvísitölu fyrir rjúpuna til að bera saman milli ára. Eins og sjá má á meðfylgjandi grafi frá Ólafi K. Nielsen eru miklar sveiflur í rjúpnastofninum. Fyrsta talningarárið voru 28 karrar með óðul á talningasvæðinu, en árið 2003 var aðeins einn óðalskarri á svæðinu. Rjúpnastofninn í Skaftafelli hefur vaxið jafnt og þétt síðan þá og í fyrravor sáust 10 óðalskarrar. Starfsmenn Vatnajökulsþjóðgarðs hafa nú tekið við vöktuninni í Skaftafelli og var talið þann 6. maí síðastliðinn í blíðskaparveðri. Átta karrar sáust og heyrðist í tveimur til viðbótar og einnig sáust fjórir kvenfuglar.

Rjúpur hafa gert sig heimakomnar á tjaldsvæðinu í vetur og vor og lífga sannarlega upp á tilveru starfsmanna og ferðamanna.

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


