Fréttir

Vorið í Suðursveit

Fréttatilkynning frá Ríki Vatnajökuls og ferðaþjónustuaðilum í Suðursveit

12.05.2009

Vorið í ríki Vatnajökuls
Vorið í ríki Vatnajökuls
Mynd 1 af 2
1 2

Ferðaþjónustuaðilar í Suðursveit  munu bjóða upp á  fjölbreytta dagskrá helgina 16. - 17. maí þar sem þjónusta þeirra verður kynnt fyrir heimafólki.  Boðið verður upp á bátasiglingu um Jökulsárlónið fyrir heimamenn eftir kl 17: 00 báða dagana.  Verð einungis 1000 kr fyrir fullorðna en frítt fyrir börn yngri en 12 ára. 

Útilistaverk og lambaskoðun í Lækjarhúsum.  Á Þórbergssetri verður sagnalist fermingasögur. Sýning  um fermingar áður fyrr, opnunarhátíð kl 13:30 á Laugardag.  Konan í forgrunni vegferð í lífi og list Alda Ármanna sýnir verk sín, opnunarhátíð kl 14:00 einnig á Laugardag.  Á Sunnudeginum verður einnig kaffihlaðborð kl 14:00 – 17:00 á Þórbergssetri.  Á Smyrlabjörgum verður glæsilegt hlaðborð á Laugardagskvöldið frá kl:18:00 – Allt úr héraði-  Báða dagana verður hægt að skoða lömb á Smyrlabjörgum og á Sunnudeginum verður kaffihlaðborð frá kl 14:00. Skálafell býður gestum að líta í bæinn ásamt því að bjóða upp á gönguferðir. 

Bregðum nú undir okkur betri fætinum og njótum þess sem í boði er í heimabyggð!

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica