Fréttir

Leiðsögunámskeið í ríki Vatnajökuls

á vegum Ríki Vatnajökuls og FAS

10.02.2009

Leiðsögumaður að störfum
Leiðsögumaður að störfum
Leiðsögumaður að störfum

 

Námskeiðið hefst  föstudaginn 13. febrúar og nær yfir fjórar helgar, svæðið sem verður tekið fyrir er Hornafjörður og Djúpivogur.

Ríki Vatnajökuls og FAS standa fyrir námskeiðinu en hvatinn er sá að mikil vöntun á leiðsögumönnum á svæðinu og eru allir þeir sem áhuga hafa hvattir til þess að skrá sig, þá hvetjum við að fólki með hverskonar sérþekkingu, málakunnáttu og alla sem hafa áhuga náttúru og sögu svæðisins.

Einnig nýtist þetta námskeið öllum þeim sem starfa við ferðaþjónustu þó að þeir stefni ekki á að starfa sem leiðsögumenn, skemmtilegra er að geta svarað spurningum ferðamanna ef menn búa yfir góðri þekkingu. Menntun leiðsögumanna er mikilvægur þáttur í sýna fram á færni okkar í að taka á móti ferðamönnum og skiptir máli í markaðssetningu svæðisins segir Rósa Björk framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls.

Meðal annars verður kennd leiðsögutækni en nemendur fá tæknilegar leiðbeiningar í leiðsögn þar sem farið verður yfir, framsögn, öryggismál, mannleg samskipti og hópstjórn. Einnig verður kenndur grunnur í jarðfræði, náttúrufræði, sögu og skyndihjálp.

 

 

 

 

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica