Fréttir

Smyrlabjörg og Brunnhóll fá viðurkenningu

Gerum góða gistingu betri - Niðurstöður sumarsins 2008

13.01.2009

Smyrlabjorgvidurk
Smyrlabjorgvidurk
Hjónin Sigurbjörn og Laufey frá Smyrlabjörgum búin að taka við viðurkenningu frá Bjarna hjá Better Buisness og Berglindi frá Ferðaþjónustu bænda.

Á uppskeruhátíð Ferðaþjónustu bænda í nóvember síðastliðnum kynnti Bjarni framkvæmdastjóri Better Buisness helstu niðurstöður frá sumrinu en dómarar eru huldugestir á gististöðunum.

Smyrlabjörg og Brunnhóll fengu viðurkenningu fyrir frábæra þjónustu, en fimm bæjum voru veitt sérstök viðurkenningarskjöl fyrir góðan árangur. Fengu þeir allir heildareinkunn yfir 8,5 og telst það vera mjög góður árangur. Þessir bæir eru Heydalur í Mjóafirði, Engimýri í Öxnadal, Brunnhóll á Mýrum, Hótel Hellnar á Snæfellsnesi og Smyrlabjörg í Suðursveit. 

Að sögn Bjarna var mjög áhugavert að heyra umsagnir gestanna og hvaða einkunnir þeir gáfu einstökum þáttum. “Þegar lagðar voru saman heimsóknir á alla bæi var heildareinkunnin 7,8 en best var útkoman í veitingasal og öðru rými (þ.e. svæði fyrir utan herbergi og veitingasal), gæði matar, yfirbragði/aðstöðu og brottför. Umhverfis- og öryggisþættir komu verst út en annað sem þarf að bæta eru atriði sem varða bókun, aðkomu, upphaf dvalar, herbergi, morgunmat, upplifun/sveitasælu, upplýsingamiðlun og umhyggju og þjónustu”.

 “Á næstu mánuðum  er ætlunin að rýna betur í niðurstöðurnar og nýta þær við uppbyggingu og þróun á þeim þjónustuþáttum sem skipta okkur öll máli, jafnframt að endurskoða gátlistann fyrir vorið.  Allar ábendingar er vel þegnar frá félagsmönnum.  Þess má geta að niðurstöður verkefnisins gefa ekki einungis einstökum bæjum verðmætar upplýsingar því  hér er um að ræða mjög gagnlegar upplýsingar fyrir heildarsamtök Ferðaþjónustu bænda.  Það má líta á þetta sem mikilvægan þátt í eflingu gæðastarfsins  og með því að halda verkefninu áfram næstu tvö sumur verður hægt að gera samanburð á millil ára.  Allir félagar í Ferðaþjónustu bænda sem bjóða upp á gistingu í uppbúnum rúmum og morgunverði geta tekið þátt í þessu verkefni”.

 

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica