Fréttir

Úrslit í ljósmyndasamkeppninni Myndaðu Ríki Vatnajökuls

17.09.2011

Ljósmyndakeppni Á Hvannadalshrygg
Ljósmyndakeppni Á Hvannadalshrygg
Á myndinni er göngumaður að arka í ævintýralegu landslagi með Vatnajökul, fjöll og heiðskýran himinn í baksýn. Ljósm. Einar Rúnar Sigurðsson

Yfir 200 myndir bárust í ljósmyndasamkeppninni Myndaðu Ríki Vatnajökuls og var úr vöndu að ráða fyrir dómnefnd.

Hægt er að skoða allar myndir sem bárust í tveimur albúmum á Facebook síðu Ríkis Vatnajökuls með því að smella hér.

 

Sérstök verðlaun voru veitt fyrir þá mynd sem fékk flest „like“ á Facebook. Sú mynd sem vann fékk 55 „like“ og heitir ljósmyndarinn Hólmar Hallur Unnsteinsson. Myndina má sjá hér. Hólmar Hallur hlýtur í verðlaun ferð fyrir tvo á Hvannadalshnjúk eða jöklagöngu með Glacier guides og þriggja rétta kvöldverð með mat úr héraði fyrir tvo á veitingastaðnum Ósinn á Hótel Höfn.

Þær þrjár myndir sem urðu hlutskarpastar að mati dómnefndar má sjá hér fyrir neðan ásamt rökstuðningi dómnefndar.

 

1. Verðlaun: Á Hvannadalshrygg – sjá hér
Dómnefnd taldi þessa mynd ná best að draga fram einkenni Ríkis Vatnajökuls. Á myndinni er göngumaður að arka í ævintýralegu landslagi með Vatnajökul, fjöll og heiðskýran himinn í baksýn. Hann er í léttum og litríkum klæðnaði og nýtur víðáttunnar einn með sjálfum sér.

Ljósmyndarinn Einar Rúnar Sigurðsson hlýtur í verðlaun Canon EOS 1000D myndavél með 18-55 mm linsu í boði Canon og Martölvunnar á Höfn, siglingu fyrir tvo á Jökulsárlóni og gistingu fyrir tvo á hótel Smyrlabjörgum.

 

2. Verðlaun: Vestrahorn – sjá hér
Dómnefnd valdi þessa mynd vegna þess að Vestrahorn er sterkt einkenni á svæðinu og erfitt er að ná slíkri fallegri heildarmynd af fjallinu. Sjónarhornið gefur skýra og sterka mynd af fjallinu.

Ljósmyndarinn Páll Jökull Pétursson hlýtur í verðlaun flugferð fyrir tvo fram og til baka milli Reykjavíkur og Hafnar með flugfélaginu Erni, ferð fyrir tvo í jeppa- eða vélsleðaferð frá afleggjara F985 með Jöklajeppum og humarmáltíð fyrir tvo á veitingastaðnum Humarhöfnin.

 

3. Verðlaun: Strákur að borða ís – sjá hér
Dómnefnd þótti þessi mynd mjög fjölskylduvæn og ná að sýna á skemmtilegan hátt hversu aðgengilegt Jökulsárlón er sem ein mest einkennandi náttúruperla svæðisins.

Ljósmyndarinn Fjóla Hrafnkelsdóttir hlýtur í verðlaun kvöldverð fyrir tvo í Árnanesi, ljósmyndabókina Jökulsárlón – Árið um kring eftir Þorvarð Árnason og gistingu fyrir tvo á tjaldsvæðinu á Svínafelli í Öræfum.

 

Ríki Vatnajökuls óskar ljósmyndurunum innilega til hamingju.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica