Fréttir
Samningur undirritaður við sveitarfélagið á fyrsta fundi nýrrar stjórnar
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar Ríkis Vatnajökuls ehf 3. maí var undirritaður nýr samningur um stuðning frá Sveitarfélaginu Hornafirði til næstu fjögurra ára, líkt og verið hefur síðustu fjögur ár frá stofnun klasans.
Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ríkis Vatnajökuls, og Kristján Guðnason, formaður Atvinnu- og menningarmálanefndar, undirrituðu samninginn sem hljóðar upp á árlegan fjárstuðning að upphæð þrjár milljónir króna. Tilgangur hans að styðja við markaðssetningu og kynningu á ferðaþjónustu og afurðum í Sveitarfélaginu Hornafirði og grundvallast hann á klasasamstarfi og samvinnu hagsmunaaðila á svæðinu.
Á aðalfundi Ríki Vatnajökuls ehf 14. apríl síðastliðinn var ný stjórn kjörin til starfa. Á fyrsta stjórnarfundinum skipti stjórn með sér verkum og var Ásmundur Gíslason í Árnanesi einróma kosinn formaður og Birna Sigurbjörnsdóttir á Smyrlabjörgum ritari. Meðstjórnendur eru Ásgeir Þorsteinsson hjá Flugfélaginu Erni, Jón Sölvi Ólafsson hjá Kokki og Vigfús Ásbjörnsson hjá Matís. Vigfús og Jón Sölvi koma nýir inn í stjórn. Varamenn eru Einar Rúnar Sigurðsson í Hofsnesi, Sævar Kristinn Jónsson á Miðskeri og Unnsteinn Þráinsson hjá Erpi. Einar Torfi Finnsson hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum og Sigurlaug Gissurardóttir á Brunnhól hverfa úr stjórn.
Ásmundur segir aðalfundinn hafa verið mjög góðan og málefnaríkan með hreinskiptar umræður. „Ný stjórn mun vinna markvisst að eflingu Ríkis Vatnajökuls og styrkja stoðirnar sem klasinn byggir á. Einnig er áhersla lögð á að allir hluthafar séu vel upplýstir um starf stjórnarinnar og má til dæmis benda á ágætt fréttabréf sem framkvæmdastjóri sendir út mánaðarlega til hluthafa. Einnig er okkur mjög í mun að þeir sendi ábendingar og hugmyndir til stjórnar.“
Starfsemi Ríkis Vatnajökuls snýst í meginatriðum um sameiginlega markaðssetningu fyrir svæðið í heild og samvinnu milli hluthafa sem leiðir af sér sterkari stöðu hvers og eins. Þar fellur margt undir en að auki stendur um þessar mundir yfir endurskoðun á stefnumótun klasans.
Aðspurður um hvað sé framundan segir Ásmundur að stjórnin hafi ákveðið að halda fjóra stjórnarfundi fyrir miðjan júnímánuð bæði til að koma ákveðnum málum í fastan farveg og eins til að setja nýja stjórnarmenn vel inn í málefni klasans. „Stærsta verkefnið núna er að klára stefnumótunina og við einsetjum okkur að kynna hana á félagsfundi í lok september eða októberbyrjun. Stjórnin er mjög starfsöm og samhent í áhuga sínum til að leggja sitt af mörkum til að efla starfið í Ríki Vatnajökuls og mun gera það af heilum hug.
![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


