Fréttir
Suðurland já takk í Ráðhúsinu í Reykjavík
Fyrirtæki og stofnanir úr Hornafirði munu vera í Ráðhúsinu í Reykjavík laugardaginn 19. mars næstkomandi að kynna starfsemi sína á Suðurlandssýningu undir yfirskriftinni ,,Suðurland já takk".
Þar fylkja Sunnlendingar liði og kynna það sem er efst á baugi í fjórðungnum. Það eru Atvinnuþróunarfélag Suðurlands, menningarfulltrúi Suðurlands og Markaðsstofa Suðurlands sem leiða þetta verkefni ásamt fjölda annarra s.s. ferðamálafulltrúum, sveitarfélögum, handverkshópum, klösum og ferðaþjónustuaðilum á Suðurlandi. Tilgangur sýningarinnar er að auka vitund og vitneskju almennings um Suðurland og allt það sem svæðið hefur uppá að bjóða. Markmiðið er að spegla allan fjölbreytileikann í landshlutanum, því munu um sextíu aðilar sem tengjast atvinnulífi og menningu tefla fram flestu því besta sem finna má á Suðurlandi á sýningunni.
Gott aðgengi er að Suðurlandi úr öðrum landshlutum og þar eru margir fjölsóttustu ferðamannastaðir á landinu. Þá gefst gestum kostur á að kynna sér náttúru svæðsins í máli og myndum en Suðurland hefur ætíð verið rómað fyrir fegurð.
Á Suðurlandssýningunni viljum við kynna nýtt sjónarhorn á Suðurland, leiða gesti sem víðast og gefa þeim innsýn í fjölbreytta flóru nýrra afþreyingarmöguleika, gistingar, veitingastaða, handsverkhópa og ýmiss konar framleiðslu.
Sýningin í Ráðhúsi Reykjavíkur er opin almenningi frá klukkan 11 til 16 laugardaginn 19. mars nk.

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


