Fréttir
Allir á Heimamarkaðinn á laugardögum
Heimamarkaðurinn hefur opnað á ný í Pakkhúsinu og er stefnan að hafa hann opinn alla laugardaga milli 13 og 16 til sumars.
Á Heimamarkaðnum gefst fólki kostur á að koma í hverri viku og kaupa ferskar afurðir frá matvælaframleiðendum á svæðinu. Auk þess er horft til þess að fá félagasamtök til að sjá um kaffisölu til fjáröflunar og kynningar á starfsemi sinni.
Gerum heimsókn í Heimamarkaðinn að föstum lið á laugardögum og styðjum með því við framleiðendur og félagasamtök í Hornafirði.
![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


