Fréttir

Suðurland já takk

09.02.2011

Hreindýr
Hreindýr
Mynd Ragnar Th. Sigurðsson

Landshlutasýningin „Suðurland já takk“ verður haldin í Ráðhúsinu í Reykjavík dagana 18. – 21. mars og gefst fyrirtækjum og stofnunum í Hornafirði kostur á að kynna starfsemi sína þar.

Markaðsstofa Suðurlands, Atvinnuþróunarfélag Suðurlands og Menningarsamningur Suðurlands standa fyrir sýningunni og er markmiðið fyrst og fremst að kynna framleiðslu og þjónustu á Suðurlandi. Sýningin á að höfða til fagaðila og neytenda sem kaupa og nýta sér framleiðslu og þjónustu af svæðinu.

Fyrirtæki og stofnanir eru  hvött til að taka þátt í sýningunni og eiga þannig þátt í að gera landshlutann sem sýnilegastan.

Þátttökukostnaður er 18.000 pr. fyrirtæki og verður sýningarsvæðið skipulagt með þátttökuaðilum. Þau fyrirtæki sem hafa áhuga á þátttöku hafi vinsamlegast samband  við Davíð Samúelsson hjá Markaðsstofu Suðurlands, davidsam@south.is  483 5555 eða Steingerði Hreinsdóttur hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands, steingerdur@sudur.is  480 4212.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica