Fréttir
Nýr framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls ehf
Fyrir nokkru var auglýst starf framkvæmdastjóra Ríki Vatnajökuls ehf. Umsækjendur um starfið voru 13 og eftir að stjórn hafði farið yfir umsóknir, voru tveir aðilar teknir í frekara viðtal, sem leiddi til þess að gengið var til samninga við Sigríði Dögg Guðmundsdóttur.
Sigríður Dögg er með MS gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum og BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Hún lauk stúdentspróf af ferðabraut við Menntaskólann í Kópavogi. Sigríður var blaðamaður á Fréttablaðinu í þrjú ár og býr frá þeim störfum yfir verðmætri reynslu og öflugu tengslaneti sem án efa munu gagnast í kynningu á Ríki Vatnajökuls,hvort heldur er þjónusta, afurðir eða menning. Samhliða námi vann Sigríður við ýmis störf í ferðaþjónustu og sem sölumaður. Hún hefur einnig talsverða reynslu af skipulagningu og stjórnun úr störfum sínum í félagsmálum undanfarin ár.
Sigríður Dögg hefur störf í byrjun desember og mun á fyrstu vikunum heimsækja alla aðila að Ríki Vatnajökuls ehf og kynna sér starfssemi þeirra og alla staðhætti.
Við bjóðum Sigríði Dögg velkomna til starfa.
Stjórn Ríki Vatnajökuls ehf.

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


