Fréttir
Fréttir frá Skaftafelli
Nú er að ljúka sýningu Fuglaverndar á fuglaljósmyndum sem hefur staðið yfir í Skaftafellsstofu frá 23. maí. Sýningin hefur vakið mikla athygli, enda um að ræða einstaklega fallegar og líflegar myndir.
Margvíslegar rannsóknir fara fram í og í nágrenni Skaftafells á sumri hverju. Í júní voru haldnir 3 fyrirlestrar þar sem rannsóknir voru kynntar. Ármann Guðmundsson frá Fornleifastofunni kynnti einstakan grip sem fannst við uppgröft á Bæ og Dr. Dave McGarvie hélt tvo fyrirlestra um rannsóknir sínar á jarðfræði Öræfajökuls og nágrenni Skaftafells. Fleiri áhugaverðir fyrirlestrar eru á dagskrá í júlí.
Hálfdán Björnsson leiddi blómaskoðunargöngu Flóruvina í Skaftafelli 14. júní, og mættu um 20 manns í gönguna, þrátt fyrir að regnguðirnir hafi valið einmitt þennan dag til að vökva í Skaftafelli.
Víkingahljómsveitin Krauka heimsótti okkur um miðjan mánuðinn. Til stóð að tónleikarnir yrðu undir berum himni, en enn voru veðurguðirnir ekki á því að uppfylla óskir okkar og því voru tónleikarnir haldnir í Skaftafellsstofu. Tónleikana sóttu um 50 manns og var gerður að þeim góður rómur. Á 17. júní flutti svo hljómsveitin dagskrá sína í Geitafelli í einu fljótbyggðasta tónleikahúsi sem um getur.
Á sumarsólstöðum var lengsta degi ársins svo fagnað með varðeldi og söng í einmuna veðurblíðu.
![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


