Fréttir

Metaðsókn í jöklaferðir

10.02.2009

Matthías á hundasleða
Matthías á hundasleða
Matthías á hundasleða

Það virðist ekki vera kreppa hvað varðar jöklaferðir því  eftirspurn er þar mikið meiri segir Einar Sigurðsson fjalla-og jöklaleiðsögumaður í Hofsnesi í Öræfum. Það hefur aldrei verið eins mikið að gera í þessum ferðum og var um sl. jól og áramót og  eru þetta nær eingöngu útlendingar sem við fáum.

Þjónusta sú sem Einar er með á þessum árstíma  eru ferðir á Svínafellsjökul, ísklifur  og ísklifursnámskeið ásamt göngu-og skíðaferðum. Algengustu ferðirnar er tveggja tíma gangur (á broddum) um skriðjökulinn og svo ísklifur. Mikil eftirspurn er í þessar ferðir og er nær uppbókað fram í september.

Með vorinu eru það íslendingar sem koma til að ganga á Hvannadalshnúk og  ég var að bóka síðasta plássið í ferðir um helgar en eitthvað er enn laust í miðri viku segir Einar.  Skíðafæri á jökulinn er mjög gott núna og  í sl. viku fór ég á skíðum frá Sandfelli kl.9 upp á hnúk  og var kominn til baka kl.17  og  fékk fínt skíðafæri alla leiðina. Það má segja að jökullinn hafi  batnað ár frá ári frá árinu 2000 hvað varðar betri og meiri snjó ofantil á jöklinum og  ísinn er að verða hreinn aftur eftir leirinn  sem barst víða um  í  Skeiðarárhlaupinu 1996.

Það er sama með bókanir í ferðir í Ingólfshöfða, þær hafa aldrei verið fleiri komnar á þessum tíma og svo er bara að vona að þær standist. Síðasta sumar sló öll fyrri aðsóknarmet  með fjölda ferðamanna í höfðann svo að það er full ástæða til að vera bjartsýnn á komandi sumar.

Fjölskyldufyrirtækið í Hofsnesi samanstendur af Einari , Matthildi Þorsteinsdóttur konu hans og Aroni syni þeirra og er starfandi allt árið.

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica