Fréttir
Er vínberjarækt kannski tækifæri til nýsköpunar?
Þessari spurningu veltu göngugarpar strandgöngunnar fyrir sér síðastliðin laugardag þegar Brynja í Grænahrauni bauð göngufólkinu upp á heimaræktuð vínber. Vínberin brögðuðust afar vel og að sögn Brynju eru þau auðveld í ræktun og árleg uppskera um 20 kg. Veður var gott og þátttaka í ferðinni frábær, yfir 30 manns. Lagt var af stað frá fjörunni fyrir neðan Dynjanda og gengið meðfram ströndinni að Þinganesi. Þar tóku Þinganesmenn á móti okkur og gengu með okkur í gegnum Þinganeslandið. Þeir sýndu okkur meðal annars Gvendarbrunn, Gálgaklett og hvar fyrsti bærinn í Þinganesi stóð. Brynja í Grænahrauni fylgdi okkur yfir lendur Grænahrauns. Suðaustur af bænum er hraun sem heitir Páskadagshraun.
Ef einhver kann sögu á bakvið þá nafngift, mætti hann hafa samband við okkur. Við enduðum ferðina þennan dag í Sauðanesi, þar sem 2. áfangi strandgöngunnar reyndist erfiður yfirferðar. Því verður aukaferð næsta laugardag 15. nóvember þar sem við göngum seinni hluta leiðarinnar frá Sauðanesi að Topphóli við Hafnarnes. Leggjum af stað frá tjaldstæðinu kl. 11.00. Athugið að leiðin getur verið blaut.
Vonumst til að sjá sem flesta
Ferðanefndin

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


