Fréttir
Saltfisksmiðjan
Ferðamenn á leið um Höfn eiga þess kost að heimsækja Saltfisksmiðju sem humar-og saltfiskfyrirtækið Bestfiskur starfrækir. Þar fá gestir að sjá hvernig sólþurrkaður saltfiskur var og er framleiddur ásamt því að fræðast um sögu saltfiskframleiðslu undir leiðsögn starfsmanns fyrirtækisins. Skoðun tekur um 30 mínútur einnig gefst gestunum kostur á að kaupa minjagripi og framleiðsluvörur Bestfisks svo sem sólþurrkaðan saltfisk (líka í gjafapakkningum), humar og ferskfisk. Sívar Árni Scheving framkvæmdastjóri Bestfisks segir að aðsókn hafi veri mjög góð síðan opnað var í byrjun júlí og það sé gaman að finna hvað útlendingarnir eru áhugasamir að skoða allt hér; sérstaklega eru það Spánverjar og Ítalir sem vilja vita allt sem við kemur saltfiskinum.
Hjá Bestfiski er starfrækt lítil fiskbúð með vinnslunni þar sem hægt er að kaupa allan þann fisk sem er á boðstólum hjá fyrirtækinu og á mánudögum og föstudögum er, að öllu forfallalausu, til glænýr ferskur fiskur, mismunandi hvað margar tegundir eftir því hvað veiðist. Ef vel viðrar er útigrillið tilbúið fyrir humarinn , humarpylsurnar ljúffengu eða hvaða fiskmeti sem er.
![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


