Fréttir

Matta í Birthday pillar.jpg

Hnappavallahamrar - 29.07.2008 Fréttir

Hnappavallahamrar í Öræfum eru stærsta og vinsælasta klettaklifursvæði á Íslandi þó svo að ekki sé mörgum heimamönnum kunnugt um það á Hornafirði. Örnefnið Hnappavallahamrar á í raun aðeins við um klettabeltið sem nær frá Sandskarði við Salthöfða í vestri og austur til Stekkatúnshamra en þeir eru lágt klettabelti sem liggur norður frá Hádegishamri í átt að Hnappavallabæjum. Öræfaferðir á Hofsnesi hafa notað klettaklifursvæðið töluvert og farið þangað með skólakrakka í skólaferðalögum í klettaklifur og sig, auk þess sem stundum hafa aðstæður verið til að halda ísklifurnámskeið í fossum í hömrunum sem eru í klakaböndum yfir vetrartímann. Austan undir Miðskjóli er tjaldstæði í skjóli hamranna á fallegum stað. Þó er þetta ekki skipulagt tjaldstæði en landeigendur á Hnappavöllum hafa leyft klettaklifursáhugafólki að tjalda þarna án endurgjalds svo framalega sem að þeir gangi vel um svæðið sem þau gera. Lesa meira
 
Tónleikar á Ólafsmessu

Tónleikar í Kálfafellsstaðarkirkju - 28.07.2008 Fréttir

Vakin er athygli á hátíðarstund og tónleikum í Kálfafellsstaðarkirkju þriðjudaginn 29. júlí klukkan 14:00. Rut Ingólfssdóttir fiðluleikari og Richard Simm píanóleikari koma í heimsókn og á efnisskránni eru þekkt lög, íslensk og erlend. Kálfafellsstaðarkirkja er mjög gott tónlistarhús og því eru sýslubúar og gestir hvattir til að mæta og njóta tónlistar, fræðslu og helgistundar í Suðursveit. Flutt verða m.a. lög eftir Pál Ísólfsson, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Inga T Lárusson og Sigvalda Kaldalóns. Gönguferð að Völvuleiði undir Hellaklettum og heimsókn í Þórbergssetur verða síðan í lok athafnarinnar. Lesa meira
 
Kálfafellsstaðarkirkja

Ólafsmessa í Kálfafellsstaðarkirkju - 25.07.2008 Fréttir

Næstkomandi þriðjudag 29. júlí kl 14:00 verður hátíðarstund og tónleikar í Kálfafellsstaðarkirkju. Markmiðið með þessum viðburði er margþætt, bæði það að efla menningarlíf í dreifbýli yfir ferðamannatímann, en einnig að vekja athygli á kirkjum héraðsins sem menningarhúsum og áhugaverðum ferðamannastöðum. Einnig er verið að gera sögu héraðsins sýnilegri með því að rifja upp gamlar sögur og sagnir og halda þannig við þekkingu á alþýðufróðleik fyrri alda. Verkefnið er samstarfsverkefni Þórbergsseturs og Kálfafellstaðarkirkju styrkt af Menningarráði Austurlands. Lesa meira
 
Rósa Björk Halldórsdóttir

Áætlun sérleyfisbifreiða milli Egilsstaðar og Hafnar hefur verið breytt - 18.07.2008 Fréttir

Nú geta Ferðaþjónustuaðilar á Hornafirði og þeir ferðamenn sem ferðast með rútu milli norðurlands og Hafnar tekið gleði sína á ný því Þingvallaleið sem er með áætlunarrútuna Höfn-Egilsstaðir hefur breytt ferðaáætlun á þessari leið í samræmi við þá áætlun sem verið hefur í gildi í mörg ár. Forsaga þessa máls var sú að í vor varð breyting á tímaáætlun á rútuferðum Þingvallaleiðar á leiðinni Egilsstaðir-Höfn og kom þá upp sú staða að ferðamenn sem komu frá norðurlandi til Egilsstaða komust ekki samdægurs með rútu til Hafnar. Ferðamenn höfðu af þessu veruleg óþægindi og aukakostnað. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica