Staðbundin matvæli og vöruþróun
Matarsmiðja Matís var formlega opnuð árið 2008. Þar er aðstaða fyrir fyrirtæki og frumkvöðla til að þróa nýjar afurðir og virðisaukandi framleiðslu úr eigin hráefni. Mikil vakning er nú meðal neytenda á Suðausturlandi sem og öllu landinu að kaupa vörur beint frá framleiðendum. Þessu hafa sjómenn og bændur í Sveitarfélaginu Hornafirði brugðist við og leggja nú mikla áherslu á að fullvinna afurðir úr hafi og haga. Sífellt bætast við nýjar afurðir. Vörum sínum koma þeir síðan á framfæri í Heimamarkaðsbúðinni, selja þær beint til veitingahúsa og verslana á svæðinu og í næsta nágrenni. Einnig má nálgast vörur frá einhverjum framleiðendanna í völdum verslunum í Reykjavík, t.d. hjá Frú Laugu á Laugalæk.

Af afurðum sem unnar eru í neytendapakkningar má nefna að um nokkurt skeið hefur verið á boðstólum eldisbleikja frá Hofi og Hnappavöllum í Öræfum og Jöklableikja frá Hala. Seljavallabændur eru með umfangsmikla kartöfluræktun og selja forsoðnar kartöflur. Fjölskyldurekið svínabú er á Miðskeri sem fullvinnur sínar afurðir. Í Ríki Vatnajökuls er eini andabóndinn á Íslandi og selur bæði heilar endur og reyktar andabringur. Einnig hefur hann þróað andafitu og sett á markað. Bændur í Árbæ á Mýrum framleiða rjómaís úr eigin mjólkurframleiðslu og er hann seldur beint frá býli. Þar er einnig nautgriparækt.
Smábátaeigendur á Hornafirði veiða makríl sem þeir heitreykja og selja í flökum eða sem makrílmyrju. Þá hefur hinni hornfirsku lúru sem er veidd og verkuð samkvæmt aldagamalli hefð, verið komið í skemmtilegar pakkningar með tilvísun í sögu veiðanna og er hún seld sem matarminjagripur. Humarinn er að sjálfsögðu í aðalhlutverki á Höfn í Hornafirði, höfuðborg humarsins í norðri. Hann er á boðstólnum á flestum matsölustöðum á svæðinu. Þá er hægt að kaupa sælkerahumarsúpu Kokksins úr staðbundnu hráefni í verslunum víða um land.

Fjölmargar fleiri afurðir má nefna s.s. berjasultur og krydd frá Dilksnesi, grænkálspestó og kartöflukonfekt frá Hólabrekkuafurðum, grafið lamb frá Smyrlabjörgum og reyktan ál frá Hornfirska álafélaginu.
Hér er listi yfir matvælaframleiðendur í Ríki Vatnajökuls ásamt tengiliðaupplýsingum:
Sultur og kryddjurtir frá Dilksnesi. Finndís s: 849 1920 netfang: dilksnes@simnet.is
Svínakjöt og kartöflur frá Miðskeri. Sævar s: 863 0924 netfang: midsker@simnet.is
Lífrænt ræktað grænmeti, kartöflur, kartöflukonfekt og pestó frá Hólabrekkuafurðum. Anna s: 860 3972 netfang: annaegil@mi.is
Reyktur makríll og markrílmyrja frá Erpi. Unnsteinn s: 894 0097 netfang: erpur@eldhorn.is
Heilar endur, andabringur, andalæri og andafita frá Ísen á Hlíðarbergi. Reynir s: 896 6415 netfang: hlidarberg@eldhorn.is
Heitreykt eða grafin gæs frá Villibráð. Heimir s: 661 1264 netfang: helenin@mmedia.is
Kartöflur frá Seljavöllum. Birna s: 894 1797 netfang: seljav@simnet.is
Ís beint frá býli og nautakjöt frá Jöklaís og Árbæ. Sæmundur s: 896 1029 netfang: saemundurj@simnet.is
Grafið lamb o.fl. frá Smyrlabjörgum. Laufey s: 478 1074 netfang smyrlabjorg@smyrlabjorg.is
Humarsoð frá Kokkurinn. Jón Sölvi s: 772 4205 netfang: jon@kokkur.is
Egg frá Grænahrauni. Valdimar s: 862 1202 netfang: allaogvald@simnet.is

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


