Handverk í héraði
Handraðinn er verslun í hjarta Hafnar á Hornafirði, á Vesturbraut 1 hjá N1. Á bak við Handraðann stendur samnefnt félag handverks- og listafólks á Suðausturlandi sem hefur það að markmiði að koma á framfæri handverki og listmunum sem framleidd eru á svæðinu. Mikil fjölbreytni er í vöruúrvali, má þar nefna listmuni úr tré, leir, gleri, steinum, þæfðri ull, bútasaum, endurunnum pappír, málverk eftir heimamenn ofl. Einnig er mikið úrval af prjónavörum bæði úr ull og öðru garni. Auk þessa eru stórglæsilegar ljósmyndir úr hinni stórbrotnu náttúru Hornafjarðar.
Opnunartími er sem hér segir:
Á veturna er opið alla föstudaga frá 11:00-18:00, laugardögum frá 13:00-17:00.
Á sumrin er opnunartíminn frá 1.maí - 3.september. Opið alla daga frá 9:00 – 18:00.
Á mánudagskvöldum er prjónakvöld Handraðanum og er verslun opin þá frá 20:00-22:00.
Símanúmerið er 868 7028begin_of_the_skype_highlighting 868 7028 end_of_the_skype_highlighting og er velkomið að hringja hvenær sem er. Smellið hér til að skoða Facebook síðu Handraðans.
Vaxandi hópur hönnuða og handverksfólks er með vinnustofur sínar í ríki Vatnajökuls.
Þau sækja sér gjarnan innblástur í náttúru svæðisins, menningu og sögu.
Nokkrir eru nefndir hér:
Guðrún Ingólfsdóttir (Gingó) www.gingo.is
Nanný / Rannveig Gunnlaugsdóttir 478-2416 | 862-2416
Árnína Guðjónsdóttir http://www.ninagud.123.is
Jón Björnsson http://www.bjoss.com/
Daníel Imsland http://www.dimms.is/
Hanna Jónsdóttir http://www.hannajonsdottir.com/
Hlynur Pálmason http://www.hpalmason.com/
Jöklamús http://www.joklamus.is/
![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


