Afurðir úr héraði
Heimamarkaðurinn í Pakkhúsinu
Heimamarkaðurinn í Pakkhúsinu/Market
Að vanda er frábært úrval á markaðinum.

Afurðir

Afurðir framleiddar í  ríki Vatnajökuls eiga það margar sameiginlegt að hafa skírskotun í menningu, sögu eða náttúru svæðisins. Byggt er á gömlum hefðum í handverki og matvælaframleiðslu í bland við skapandi hugsun hönnuða og listamanna. Fjöldi nýrra afurða hefur orðið til og ánægjulegt hvað mikil gróska er í framleiðslu, hvort sem um er að ræða handverk eða matvörur.  Þegar hefur verið framleiddur matarminjagripur, Lúra sem er til sölu á Jöklasýningu og í Handraðanum.Lúra




Í Ríki Vatnajökuls ertu sannarlega kominn í stóra matarkistu, með fjölbreyttum landbúnaði til sveita og öflugum sjávarútvegi á Höfn. Aðgengi að fersku hráefni er mjög gott og hefur svæðið skapað sér orðspor fyrir að vera sælkerahérað.  Sumarið 2009 var opnuð Heimamarkaðsverslun á Höfn með afurðum úr ríki Vatnajökuls, sem framleiðendur hafa sjálfir fullunnið á svæðinu. Heimamarkaðsverslunin er í Pakkhúsinu við höfnina sem er gamalt hús með mikla sögu. Í því er einnig sjóminjasafn. Verslunin er opin alla daga yfir sumartímann en yfir veturinn er á laugardögum, opinn bænda- og fiskimarkaður í Pakkhúsinu.

Afurð úr ríki Vatnajökuls


Þessi merking vottar það að varan sé framleidd í ríki Vatnajökuls



 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica