Verslanir og söluskálar
Á Höfn er fjölbreytt úrval verslana sem selja flest það sem ferðamanninn vanhagar um. Það er hins vegar staðreynd að það eru ekki margar verslanir í dreifbýlinu á Suð-Austurlandi. Á leiðinni milli Kirkjubæjarklausturs og Djúpavogs er aðeins mögulegt að versla matvörur í Söluskálanum í Freysnesi, allt árið. Söluskálinn í Nesjum er opinn yfir sumarið og þá er allt upptalið. Í Freysnesi og í Nesjum er einnig sjálfsafgreiðslu eldsneytissala og einnig á Fagurhólsmýri. En á bænum Hestgerði í Suðursveit afgreiða bændur sjálfir eldsneytið og hafa bjargað mörgum, þegar sjálfvirknin hefur brugðist. Hikið ekki við að gera vart við ykkur með því banka upp á hjá þeim eða bara flauta

![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


