Höfn
Humar á höfn
Humar á Höfn/Lobster at the dock

Veitingar Höfn

Ferðamenn sem leggja leið sína til Hafnar á Hornafirði geta valið úr fjölbreyttu úrvali veitingastaða.  Á Höfn finnur þú bæði yndisbitastaði (slow food) og skyndibitastaði (fast food) og ýmislegt þar á milli.  Við mælum sérstaklega með því við ferðamenn að þeir prófi einhvern af þeim margvíslegu humarréttum sem eru í boði á Höfn, í höfuðstað humarsins í norðri.  Og gestum tjaldsvæða eða sumarhúsa, viljum við benda á að það er alltaf hægt að kaupa frosinn humar í Nettó og grilla sjálfur.






Höfn - Veitingasala Höfn

Hafnarbúðin

Hafnarbúðin

Í Hafnarbúðinni er boðið upp á fjölbreyttan matseðil sem samanstendur m.a. af hamborgurum, breiðlokum, duggum, ýmsum smáréttum og vinsælum djúpsteiktum fiski. Þar er einnig sælgæti, drykkir, tímarit og fleira á boðstólnum. Hafnarbúðin er staðsett í hjarta bæjarins við höfnina og þaðan er skemmtilegt að fylgjast með lífinu á bryggjunni.

Humarhöfnin

Humarhöfnin

Humarhöfnin er veitingastaður við höfnina á Höfn í Hornafirði. Veitingahúsið sérhæfir sig í réttum þar sem notast er við svæðisbundið hráefni en með aðaláherslu á leturhumar (langoustine). Starfsemin er byggð á fáum réttum þar sem vöruþróun skipar stóran sess þar á meðal þróun og aðlögun á réttum úr heilum og lifandi humri að íslenskum aðstæðum.

Fyrir utan humarrétti eru einnig boðstólnum aðrir svæðisbundnir réttir.

Sjá meira

bakari

Jón bakari, Hornabrauð ehf.

Það fyrsta sem þú berð augum þegar þú gengur inn í Miðbæ sem er verslunarkjarni Hafnar er Jón Bakari. Þar er veitingasala með kaffi, súpu, smurðu brauði og drykkjum. Hægt er að sérpanta brauð fyrir afmælisboð, veislur eða hverskonar uppákomur þar sem vel á að veita.

Sjá meira

Kaffihornið

Kaffi Hornið

Kaffi Hornið, veitingastaður í fallegu bjálkahúsi við aðalgötuna á Höfn. Þar er boðið upp á fjölbreyttan og girnilegan matseðil. Þar finnur þú meðal annars súpur, samlokur, pasta, fiskrétti og kjötrétti.

N1 Hraðbúð

N1 Þjónustustöð við Vesturbraut

Bensínstöð, þvottastöð, matvörur og nauðsynjar, grill og skyndibiti.

Ósinn

Ósinn

Hótel Höfn leggur allan sinn metnað í glæsilegan matseðil og góða þjónustu. A la carte veitingarstaður hótelsins heitir Ósinn og sérhæfir sig í réttum úr ríki Vatnajökuls.  Á matseðlinum má finna s.s. önd frá Hlíðabergi, humar úr hornafjarðardýpi, grænmeti úr sveitinni og margt fleira.   Eins er boðið uppá létta rétti eins og pizzur með humri eða saltfiski, ásamt venjubundnu áleggi.

Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

 

Veitingasalan í Nýheimum

 

Réttur dagsins í hádeginu ásamt súpu og salatbar. Smurt brauð og lokur, einnig gott úrval af sætabrauði.

Tekur á móti hópum í öllum stærðum

Sjá meira

Víkin Skafti

Víkin

Á víkinni er hægt að kaupa eftir matseðli t.d pizzur, hamborgara,fiskrétti, steikur, humarsúpu, humarloku að ógleymdum humarréttinum gómsæta steiktum í skelinni. Veitingastaðurinn bíður einnig upp á vínveitingar. Um helgar eru ýmist dansleikir eða opinn bar.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica