Veitingar og verslun
Lúra
Lúra
Mynd Ragnar Th. Sigurðsson

Fjölbreytt úrval

Í ríki Vatnajökuls er að finna fjölbreytt úrval veitingastaða og leggja flestir áherslu á afurðir úr héraði. Hægt er að velja um yndisbitastaði (slow food) eða skyndibitastaði (fast food) og allt þar á milli.  Eini þéttbýliskjarninn í Austur-Skaftafellssýslu er Höfn í Hornafirði.  Þar er að finna lágvöruverslunina Nettó, en einnig ýmsar sérverslanir og aðra þjónustu.  Á flestum bensínstöðvum er hægt að kaupa matvörur. Svæðið á Suðausturlandi sem við köllum ríki Vatnajökuls er mjög víðfermt og dreifbýlt og getur því verið langt á milli veitingastaða eða greiðasölu. Einkum á þetta við að vetrarlagi þegar öll þjónusta er í lágmarki.  Þá er í Öræfunum hægt að fá sér í svanginn eða byrgja sig upp af nesti, á bensínstöðinni í Freysnesi, en þar er líka lítil verslun og hægt að fá heitan heimilismat. Veitingasalan í Þórbergssetri er opin allt árið en flestir aðrir gisti- og veitingastaðir í dreifbýli bjóða upp á takmarkaðan opnunartíma. Hótel Höfn og Kaffi-Hornið bjóða upp á veitingar árið um kring.  Einnig er hægt að fá skyndibita á fleiri stöðum.  Á laugardögum er hægt að upplifa ekta markaðsstemningu í Pakkhúsinu og kaupa afurðir úr héraði beint af framleiðendum.


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica