Veiði

Óðinn Eymundson við veiðar í Laxá í Nesjum
Óðinn Eymundson við veiðar í Laxá í Nesjum

Veiði

Suðausturland er ekki eitt af þekktustu laxveiðisvæðum Íslands.  Engu að síður eru í ríki Vatnajökuls ýmsir möguleikar fyrir  veiðimenn í ám og vötnum, en sérstaklega má benda á Laxá í Nesjum í því sambandi.  Nokkuð er um heindýr  en til þess að veiða þau, þarf hreindýraveiðileyfi.  Frekari upplýsingar á www.hreindyr.is  og www.veidistjorn@ust.is

Stórir flokkar af gæsum sækja í akra og tún bænda á haustin.  Margir bændur leigja veiðisvæðin út fyrirfram en einnig er mögulegt að koma við hjá bændum og fá leyfi.  Nokkuð er af rjúpu og gilda þar sömu reglur, þ.e.  að fá leyfi landeigenda áður en haldið er til veiða. 

Laxá í Nesjum

Veiðifélagið Laxanes ehf. býður upp á laxveiði í Laxá í Nesjum en félagið hefur ræktað ánna upp með góðum árangri. Samkvæmt Viðskiptablaðinu er hún nú þegar orðin 27. besta laxveiðiá landsins. Í Laxá eru skráðir 24 veiðistaðir sem allir eru vel merktir, en veiðisvæðið er um 6 km. langt frá gljúfri niður að Áramótahyl.

Áin er tveggja stanga og veiðitíminn er frá kl. 7:00 til 13:00 og frá kl. 16:00 til 22:00. (Eftir 8. ágúst frá 15:00-21:00). Leyfilegt er að veiða á maðk og flugu fram til 26. júlí en þá er einungis hægt að veiða á flugu til 29. ágúst.

Hægt er að nálgast upplýsingar um veiði í öðrum veiðiám í Sveitarfélaginu hjá Upplýsingamiðstöðinni

Veiði í Þveit

Hægt er að nálgast veiðileyfi í Stórulág sem er bóndabær staðsettur rétt við Þveitina.

Ekið er frá þjóðvegi nr.1 inn afleggjarann af hótel Vatnajökli og þar kemur í ljós skilti sem vísar heim að bænum. 

 

 

 


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica