Gönguleiðir
Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls
Margar góðar og fjölbreyttar gönguleiðir er að finna í fallegu umhverfi ríki Vatnajökuls. Nokkrar gönguleiðanna eru stikaðar og með fræðsluskiltum. Hægt er að mæla með gönguleiðum í Skaftafelli, ratleik við Hala, gönguleiðum að Skálafellsjökli, um Hjallanes, við Flájökul og í Haukafelli. Einnig er skemmtilegt að ganga upp að Bergárfossi í Nesjum en þar er hægt að ganga á bak við fossinn eða að ganga fyrir Horn. Fyrir þá sem vilja lengri göngur er alltaf vinsælt að ganga í Hoffellsfjöllum eða frá Stafafelli alla leið inn í Lónsöræfi. Góðir göngustígar/gönguleiðir eru einnig á Höfn m.a. um Óslandið sem er friðlýst svæði við sjávarsíðuna. Í Óslandinu er að finna upplýsingaskilti um svæðið og þar er hægt að ganga skemmtilegan hring frá tjörninni og virða fyrir sér hið mikla fuglalíf sem þar er. Skemmtilegt er að fylgjast með bátum fara í gegnum Ósinn sem er innsiglingin til Hafnar. Glæsilegt útsýni til sjávar, fjalla og jökla. Yfir sumartímann er svæðið varpstaður kríunnar og þá er hún þar allsráðandi..
Vel unnin gönguleiðakort eru fáanleg í Upplýsingamiðstöðinni sem er staðsett í sama húsi og Jöklasýningin, Hafnarbraut 30 og í upplýsingamiðstöð Vatnajökulsþjóðgarðs í Skaftafelli. Einnig hægt að panta kort í síma 478-1500 eða á tourinfo@visitvatnajokull.is. Á kortinu hér til hægri eru upplýsingar um gönguleiðir.
Hér er hægt að nálgast gönguleiðarkort í héraðinu (pdf): Nes og Höfn, Mýrar, Suðursveit, Lónsöræfi.
![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


