Fyrir börnin

Að leik í Haukafelli
Að leik í Haukafelli
Playing in Haukafell

Að leita þess stóra í hinu smáa

,,Að leita þess stóra í hinu smáa” svo vitnað sé til Þórbergs Þórðarsonar, á sennilega hvergi betur við en þegar börnin eru annars vegar.  Ríki Vatnajökuls er endalaus uppspretta upplifunar fyrir börn á öllum aldri. Stuttar og langar gönguferðir með blóma-, fugla- og steinaskoðun er nokkuð sem allir geta gert.  Að hlaupa um í fjörunni eða busla í lækjarfarvegi gleymist seint.  Það er fjölmargt sem vekur forvitni barna, mundu bara að gefa þér tíma til að njóta þess með þeim. Ef áhugi er fyrir skipulagðri afþreyingu sem hentar börnum og allri fjölskyldunni þá eru þau fyrirtæki listuð hér að neðan.  Einnig viljum við benda á að fróðlegt er að kíkja á söfn og sýningar.  Sjá hér  þá linkur inn á þann lið á þessari síðu.

 

Öræfaferðir

Öræfaferðir bjóða að sumri upp á skipulagðar ferðir í Ingólfshöfða sem henta allri fjölskyldunni.  Einnig bjóða Öræfaferðir uppá kajaksiglingar í grunnum lindám.  Þar geta börn allt niður í átta ára aldur siglt sínum eigin kajak, en yngri börn geta verið í kayak með foreldrum.    sjá www.oraefaferdir.is

 

Jökulsárlón

Ferðaþjónustan Jökulsárlóni býður upp á siglingar á Jökulsárlóni yfir sumartímann og eru þetta ferðir sem henta allri fjölskyldunni. Óviðjafnanlegt að sigla á milli risavaxna ísjaka eða kíkja eftir sel sem oft má sjá í lóninu.   sjá www.jokulsarlon.is

 

Húsdýragarður í Hólmi

Húsdýragarður með algengum íslenskum húsdýrum ásamt mörgum öðrum.

Í garðinum má finna sauðfé, hesta, kálfa, geitur, grís, ketti, ýmsar kanínutegundir, naggrísi, íslenskar hænur, dverghænur, lynghænur, fashana, ýmsar dúfnategundir, gæsir og endur.

Mismikið er af tegundum eftir því hvaða árstími er. En þegar vorar kviknar líf í garðinum. Þá iðar allt af ungviðum af ýmsum gerðum.

Hjólastóla aðgengi er í garðinum.

Ef gist er á vetrartíma er frítt í húsdýragarðinn, og gestir geta tekið þátt í að fóðra sauðfé og önnur dýr á bænum.   Opið allt árið.  sjá www.eldhorn.is/mg/gisting

 

Árnanes – hestaferðir

Fjölskyldan getur notið útreiðatúra saman á traustum og áreiðanlegum hestum í fallegu umhverfi.  Árnanes býður upp á stutta reiðtúra eða lengri ferðir á hestum sem hæfa getu hvers og eins.  Hlífðarfatnaður og hjálmar eru til staðar og kennsla er fyrir byrjendur í upphafi ferðar.  Ferðirnar sameina útivist, náttúruupplifun og einstakt samband hests og knapa. www.arnanes.is


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica