Fuglaskoðun
Fuglaskoðun
Fjölbreytt fuglalíf er á Suð-Austurlandi. Hingað flykkjast farfuglarnir á vorin og þeir safnast hér einnig saman á haustin áður en þeir leggja aftur í langferðina til hlýrri heimkynna. Á vorin og haustin eru álftir og gæsir áberandi. Stærsta skúmabyggð í heimi er á Skeiðarár- og Breiðamerkursandi og gráspör verpir á Hofi í Öræfum. Í Ingólfshöfða er mikið um lunda og hægt er að komast mjög nálægt honum þar. Öræfaferðir bjóða upp á ferðir í Ingólfshöfða yfir sumartímann. Sjá www.oraefaferdir.is Fuglaathugunarstöð Suð-Austurlands fylgist vel með fuglalífinu á svæðinu og verður oft vart flækingsfugla. www.fuglar.is Erlendir fuglaáhugamenn koma gjarnan á Suðausturland á sumrin til þess að skoða fugla sem þeir þekkja í vetrarbúningi í heimalandi sínu en hér sjá þeir þessar sömu tegundir í sumarbúningi. Hægt er að fá leiðsögn hjá sérstökum fuglaleiðsögumönnum (Björn Arnarsson 892-1869, Brynjúlfur Brynjúlfsson 894-0262)
Sjá einnig: icelandicbirds.com
![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


