Fjöruferðir

Breiðamerkurfjara
Breiðamerkurfjara
Ljósmynd: Ragnar Th. Sigurðsson

Fjaran

Fjöruferð er sérstök upplifun.  Gönguferð í svörtum fjörusandinum, þar sem skynja má krafta jökulsins á aðra hönd og Atlantshafsins á hina lætur engann ósnortinn og hentar öllum aldurshópum.  Að byggja kastala, láta ölduna elta sig eða hlusta á nið hafsins, ásamt fjölmörgu öðru forvitnilegu, kostar heldur ekki neitt.  Greiðfært er niður á fjörur við Jökulsárlón, austan við Hólmsá á Mýrum, við Stokksnes í Nesjum og við Hvalnesvita í Lóni. 

Ferðaþjónustan í Hólmi á Mýrum býður upp á ferðir með leiðsögn niður á fjörur. www.eldhorn.is/mg/gisting


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica