Afþreyingarfyrirtæki

Jöklajeppar
Jöklajeppar
Jöklajeppar

Afþreyingarfyrirtæki

Fjölmörg afþreyingarfyrirtæki eru með starfssemi í ríki Vatnajökuls og bjóða uppá fjölbreytta möguleika og trygga leiðsögn.  Hægt er að njóta þjónustu margra þeirra allan ársins hring.  Suðausturland  er eitt snjóléttasta svæði landsins og auðvelt að komast þangað allan ársins hring hvort sem komið er akandi eða fljúgandi.  Þótt fallegt sé á Suðausturlandi á sumrin eru veturnir ekki síðri þegar jökullinn skartar sínu fegursta og skriðjöklarnir taka á sig margvíslegan bláma. 


Afþreyingarfyrirtæki - Afþreying

Atlandsflug

Atlantsflug ehf

Atlantsflug vara stofnað til að veita flugþjónustu fyrir ferðamenn. Aðaflugstarfsemi félagsins er í Skaftafelli þar sem félagið býður upp á útsýnisflugi til staða eins og Grímsvatna, Langasjó, Lakagíga, Landmannalauga og annara staða sem ferðamenn vilja njóta úr lofti. Atlantsflug býður upp á nokkrar mismunandi ferðir og sinnir einnig séróskum aðila svo sem ljósmyndara, kvikmyndatökuaðila og einstaklinga. Janframt býður félagið upp á útsýnisflug frá Reykjavík allt árið.

Sjá meira

Hvannadalur, Nautastígur í Suðursveit 2005

Ferðafélag Austur-Skaftafellssýslu

Ferðafélag Austur-Skaftfellinga er áhugamannafélag sem heldur úti fjölbreyttu og öflugu félagsstarfi.  Félagið rekur Múlaskála, gistiskála á Lónsöræfum.  Einnig skipuleggur félagið fjölmargar gönguferðir árið um kring.

Sjá meira

ErnirAir

Flugfélagið Ernir

Flugfélagið Ernir sinnir reglulegu áætlunarflugi til Hafnar og býður upp á útsýnisflug frá Hornafjarðarflugvelli yfir sumarmánuðina, sjá hér.

Sjá meira

Norðurljósablús

Hornfirska skemmtifélagið

Hornfirska skemmtifélag eru samtök áhugafólks og hefur m.a. staðið fyrir tvennskonar skemmtunum á ári; haustskemmtun í samstarfi við Hótel Höfn og blúshátíð í mars.

Sjá meira

Hólmur, gistiheimili

Hólmur á Mýrum

Ferðaþjónustan Hólmi býður upp á gistingu, fjöruferðir og er húsdýragarður á bænum. Gistingin er í hlýlegu endurgerðu húsi með sex tveggja manna herbergjum.Í húsinu er eldunaraðstaða og borðstofa. Á heimili gestgjafa eru einnig tvö tveggja manna herbergi.  Boðið er upp á morgunverð á heimili gestgjafa og einnig kvöldverð ef pantað er fyrirfram.

Sjá meira

Fjallleidsogumenn

Íslenskir fjallaleiðsögumenn í Skaftafelli

Íslenskir Fjallaleiðsögumenn bjóða upp á ýmiss konar jökla- og fjallgöngur frá Vatnajökulsþjóðgarði í Skaftafelli frá 1. mars til 31. október á hverju ári.  Frá Skaftafelli er farið í jöklagöngur á jökultungu Svínafellsjökuls og fjallgöngur á Hvannadalshnúk, hæsta tind Íslands (2110 m), og Hrútsfjallstinda (1875m).  Lágmarksaldur fyrir jöklagöngur er 10 ár.

Sjá meira

Jöklajeppar

Jöklajeppar ehf

Hjá Jöklajeppum- Ís og Ævintýri eru í boði fjölbreyttar jeppa- og sleðaferðir um Vatnajökul. Vinsælast er að fara styttri sleðaferð á Vatnajökli  en þá er farið um 4,5 km inná jökulinn. Þar að auki skipuleggja Jöklajeppar göngu- og skíðaferðir um jökulinn. Hægt er að panta ferðir allt árið um kring, en daglegar ferðir eru frá 1. maí  til 10. september kl. 09.30 og 14.00. 

Sjá meira

Glacier-Guides

Jöklamenn ehf

Jöklamenn (Glacier Guides) er fyrirtæki sem býður upp á fagmannlega fjallaleiðsögn og leggur metnað sinn í að bjóða upp á fjölbreytt úrval jökla- og fjallaferða auk annarra ævintýra. Söluskrifstofan er staðsett við Gestastofuna í Skaftafelli, með útsýni yfir Öræfajökul sem veitir okkur innblástur og starfsorku.

Sjá meira

Jöklasýning á Höfn

Jöklasýning

Jöklasýningin ÍS-land á Höfn er opin yfir sumartímann en hægt er að opna fyrir hópa yfir vetrartímann.

Sjá meira

Jöklaveröld

Jöklaveröld Hoffelli

Jöklaveröld býður upp á ýmsa möguleika í afþreyingu, fjórhjólaferðir með leiðsögn, hjólabátsferðir á jökullóni Hoffellsjökuls auk heitra náttúrulauga þar sem upplifunin er einstök og andstæður náttúrunnar mætast, jarðhiti og jökull. Í Hoffelli eru tvö gistiheimili.

Sjá meira

Jökulsárlón

Jökulsárlón ehf

Á Jökulsárlóni er boðið upp á 30-40 mín. siglingu á hjólabátum frá því í maí fram í september. Lónið leggur yfir veturinn og því ekki hægt að sigla allt árið um kring. Ferðirnar eru með leiðsögumanni sem upplýsir farþega um það sem fyrir augu ber. Einnig er lítill veitingaskáli við lónið þar sem hægt er að fá léttar veitingar, kaffi og minjagripi. Fyrir utan skálann er góður sólpallur þar sem ljúft er að slappa af og njóta náttúrunnar.

Sjá meira

Vatnajokull-travel

Vatnajökull Travel

Vatnajökull Travel aðstoðar við skipulagningu á árangursríkri og ógleymanlegri dvöl í stórkostlegu umhverfi Vatnajökuls, stærsta jökuls í Evrópu. Boðið er upp á margvíslega ferðapakka allt árið, m.a. norðurljósaskoðun yfir veturinn. Yfir sumarmánuðina eru áætlunarferðir upp á jökul.  Öll almenn akstursþjónusta og umboð fyrir Hertz bílaleiguna á Höfn. Dekkjaþjónusta og dekk frá Sólningu.

Sjá meira

Þórbergssetur

Þórbergssetur

Þórbergssetur á Hala í Suðursveit er menningarsetur reist til minningar um Þórberg Þórðarson rithöfund. Þar er sýningar helgaðar sögu Suðursveitar og lífi og verkum Þórbergs. Í Þórbergssetri er fjölbreytt menningarstarfsemi, safn, minjagripasala og veitingahús.

Sjá meira

Hofsnes LogoMynd1

Öræfaferðir

Fjölskyldufyrirtækið Öræfaferðir á Hofsnesi býður upp á fjölbreytta afþreyingu í Öræfasveit og nágrenni allt árið um kring. Á sumrin eru í boði skemmtilegar sögu og fuglaskoðunarferðir í Ingólfshöfða. Einnig eru Öræfaferðir með byrjendavænar kajakaferðir á Hofsnesi, auk ýmiskonar fjallamennsku, skíða og klifurferða í ríki Vatnajökuls, þar á meðal göngur á Hvannadalshnúk.

Sjá meira


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica