Norðurljósaskoðun

Jökulsárlón og norðurljós
Jökulsárlón og norðurljós
Mynd Ragnar Th. Sigurðsson

Aurora Borealis

Vetur í ríki Vatnajökuls eru ekki síðri upplifun heldur en bjartar sumarnætur.  Þá verða jöklarnir dimmbláir, tunglið lýsir upp snæviþakin fjöllin og samspil ljóss og skugga verður óvenju fagurt.  Norðurljósin öðlast sérkennilegan bjarma í ríki Vatnajökuls þegar þau kallast á við jökulinn. Svo er einnig í tunglsljósi.  Þá birtir yfir jöklinum og er eins og hann dragi í sig birtuna og endurkasti henni þannig að lýsir upp himinhvolfið.  Fjölmargir ljósmyndarar hafa lagt leið sína hingað til þess að mynda þessa undraveröld.

Hægt er að bóka gistingu og norðurljósaferðir hjá Vatnajökull Travel hér  www.vatnajokull.is eða á  Hótel Höfn hér www.hotelhofn.is


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica