Fjallamennska

Ísklifur
Ísklifur
Mynd Ragnar Th. Sigurðsson

Fjallaferðir

Í landslagi þar sem stærsti jökull Evrópu er í aðalhlutverki ásamt háum fjöllum skapast fjölbreyttir möguleikar til fjalla- og jöklaferða. Lengri sem styttri fjallgöngur eru vinsælar allt árið á svæðinu sem er eitt það snjóléttasta á Íslandi.  Aðstæður til klettaklifurs eru víða mjög góðar og þekktasta svæðið er í Hnappavallahömrum. Aukin ásókn er í ísklifur og mögulegt er að fara á skíði uppi á Vatnajökli.  Nokkur sérhæfð afþreyingarfyrirtæki starfa á svæðinu og á þeirra vegum starfa færir fjallaleiðsögumenn sem þekkja aðstæður mjög vel og hafa öryggið í fyrirrúmi. Þau bjóða öll uppá jöklagöngur og ísklifur að ógleymdum ferðum á Hvannadalshnúk

  • Öræfaferðir starfa allt árið um kring og bjóða sérsniðnar ævintýraferðir. hér www.oraefaferdir.is
  • Íslenskir fjallaleiðsögumenn bjóða upp á ýmiss konar jökla- og fjallgöngur frá Vatnajökulsþjóðgarði í Skaftafelli frá 1. mars til 31. október á hverju ári. Hér www.fjallaleidsogumenn.is
  • Jöklamenn bjóða uppá fjölbreyttar fjalla- og jöklaferðir yfir sumartímann.  Hér www.joklamenn.is

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica