Afþreying
Afþreying fyrir alla fjölskylduna
Í mögnuðu umhverfi ríki Vatnajökuls á Suðausturlandi finna allir eitthvað við sitt hæfi. Fjölbreytt náttúrufar, mikilfenglegt landslag og menningarminjar býður upp á margskonar möguleika til náttúruskoðunar, útivistar og upplifunar. Hvort sem ferðast er um svæðið á eigin vegum eða slegist í för með einhverjum þeirra fjölmörgu afþreyingarfyrirtækja eru möguleikarnir ótal margir s.s. fuglaskoðun, gönguferðir frá fjöru til fjalla, fjórhjólaferðir, hestaferðir, siglingar og útsýnisflug. Eða fara í golf, sund, heimsókn í húsdýragarð eða á söfn og sýningar. Þeir sem sækja í fjallgöngur og jöklaferðir komast vart á hentugri stað til þess á Íslandi, en hér er allan ársins hring hægt að stunda kletta- og ísklifur, sem og göngu- og sleðaferðir á jökli. Ýmiss konar árvissir viðburðir eru í ríki Vatnajökuls og þar ber hæst Humarhátíð á Höfn í júlí, Norðurljósablús í mars og haustdagsskrá Skemmtifélags Hornafjarðar. Snjólétt er í Ríki Vatnajökuls og því greiðar samgöngur allt árið.
![[Ferðaupplýsingar]](/media/utgefidefni/Travel.jpg)
![[Fundir og ráðstefnur]](/media/utgefidefni/Conference.jpg)
![[Jöklaferðir]](/media/utgefidefni/GlacierTours.jpg)
![[Menning og viðburðir]](/media/utgefidefni/Culture-&-Events.jpg)
![[Veitingar]](/media/utgefidefni/Dining-&-wining--Veitingar.jpg)
![[Vatnajökulsþjóðgarður]](/media/utgefidefni/Vatnajokull-national-park.jpg)


