Íbúðagisting og sumarhús

Sumarhús

Ekki er mikið um að hægt sé að leigja sér sumarhús á almennum markaði í Austur-Skaftafellssýslu, þar sem flest sumarhús sem hér er að finna eru í eigu stéttarfélaga.  Hins vegar er yfir vetrartímann mögulegt að leigja aðstöðu til lengri tíma hjá ýmsum ferðaþjónustuaðilum.


Íbúðagisting og sumarhús - Íbúðagisting

dilksnes

Dilksnes - gistiheimili

Í Dilksnesi er boðið upp á gistingu í tveimur herbergjum með sameiginlegum aðgangi að eldhúsi og baðherbergi, um er að ræða eitt þriggja manna herbergi með 3. rúmum og eitt herbergi með tveimur rúmum og góðri koju. Dilksnes er 4. km frá Höfn og 1.km frá þjóðvegi 1. Ekki er boðið upp á morgunverð.

Hali í Suðusveit

Hali Suðursveit

Á Hala í Suðursveit er boðið upp á gistingu allt árið um kring fyrir 45 manns í eins, tveggja og þriggja manna herbergjum. Gisting er í tveimur húsum sem henta vel fyrir fjölskyldur og minni hópa. Hægt er fá uppábúin rúm eða svefnpokapláss. Morgunverður og aðrar veitingar eru í boði í Þórbergssetri. Yfir vetrartímann er hægt að leigja íbúð á Hala samkvæmt samkomulagi frá 1. október – 1. maí.
Merktar gönguleiðir og ratleikur þar sem verk Þórbergs Þórðarsonar koma við sögu eru í nánasta umhverfi.

 

Sjá meira

Skýjaborg

Skýjaborg

Vel búin íbúðargisting á Höfn. Íbúðin er 72 fermetrar. Í henni eru 3 svefnherbergi með rúmum fyrir 4-5 einstaklinga. Í íbúðinni er eldunaraðstaða, sturta og þvottavél. Góð stofa er í íbúðinni. Um er að ræða hentuga gistingu fyrir fjölskyldur.

Sjá meira


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica