Beint í leiðarkerfi vefsins.
Á farfuglaheimilinu Nýjabæ er boðið upp á gistingu í 33 rúmum sem eru í tveggja til sex manna herbergjum. Þar af eru tvö tveggja manna herbergi með baði auk þess sem tvö baðherbergi eru sameiginleg (eitt á hvorri hæð). Boðið er upp á svefnpokagistingu auk þess sem hægt er að leigja sængurver og fá útvegaðar sængur. Hægt er að fá uppábúin rúm en þau þarf að panta með fyrirvara. Í húsinu er eldhús, sjónvarpsherbergi, reiðhjólageymsla og þvottaaðstaða fyrir gesti. Boðið er upp á morgunverð fyrir hópa. Farfuglaheimilið er vel staðsett í miðju bæjarins þar sem stutt er í alla þjónustu.
Á farfuglaheimilinu Vagnsstöðum eru í boði 7 herbergi, öll með handlaug. Góð eldunaraðstaða er fyrir gesti og sameiginlegt rými og einnig eru 3 smáhýsi. Á Vagnsstöðum er einnig tjaldstæði með góðri hreinlætisaðstöðu. Farfuglaheimilið er í fallegu umhverfi, stutt bæði til fjalla og niður að strönd þar sem er mikið fuglalíf. Góðar gönguleiðir eru til fjalla og hægt er að kaupa eða leigja afnot af gönguleiðakorti, ásamt því að seld eru þar veiðileyfi. Farfuglaheimilið er vel staðsett fyrir þá sem vilja nýta sér afþreyingu við og á Vatnajökli, og þaðan er boðið er upp á 4-5 klst. jeppa- og vélsleðaferðir á jökulinn með Jöklajeppum. Skaftafell 85 km. og Jökulsárlón 30 km.
Gistiheimilið á Bölta í Skaftafelli býður upp á gistingu og morgunverð fyrir 18 manns, bæði í svefnpokagistingu og uppábúnum rúmum. Gisting í glæsilegu umhverfi innan þjóðgarðs. Opið frá mars-október.
Vesturhús er kósí skáli á láglendi. Húsið er útbúið með 6 herbergjum fyrir svefnpokagistingu í eins til tveggja manna kojum, stóru eldhúsi (útbúið öllum almennum eldhúsáhöldum og gasgrilli) og borðstofu ásamt setustofu. Í húsinu eru 2 baðherbergi með sturtum og wc. Síminn í Vesturhúsi er 474 1200. Úr húsinu er einungis hægt að hringja í 112 og umsjónarmenn húsins, sem eru ekki búsettir í sama húsi. Handklæði og rúmfatnað þurfa gestir að koma með sjálfir.
Hótel Jökull er við þjóðveg 1 um 8 km. vestan við Höfn. Þaðan er glæsilegt útsýni til jökla. Boðið er upp á gistingu í 23 herbergjum með baði og 17 herbergjum með handlaug. Svefnpokagisting í kjallara í 6 herbergjum með handlaug. Á hótelinu er veitingarstaður sem býður upp á matseðil/sjávarréttahlaðborð. Veitingarstaðurinn tekur 70 manns Einnig er á hótelinu setustofa og frítt internet.
Á Hrollaugsstöðum er boðið upp á gistingu í skólahúsnæði yfir sumartímann. Hægt er að velja um gistingu í uppábúnu rúmi eða í svefnpokagistingu. Þar að auki eru í boði þrjú 2-4 manna smáhýsi og tjaldstæði með snyrtiaðstöðu. Stendur við þjóðveg 1 og er ákjósanleg staðsetning fyrir þá sem vilja nýta sér afþreyingu við Vatnajökul.
Við bæinn Lambleiksstaði á Mýrum (30 km vestan við Höfn) eru fjögur ný smáhýsi. Í þremur smáhýsum eru svefnpokapláss fyrir 4 í tvíbreiðri koju. Í einu smáhýsi eru svefnpokapláss fyrir 6 manns, fjögur pláss í tvíbreiðri koju og tvö í svefnsófa.Samtals eru gistipláss fyrir 18 manns í rúmi. Einnig er hægt að fá aukadýnu inní hús.Tjaldstæði liggur norðanvert við bæinn en þaðan er tilkomumikið útsýni til skriðjökla Vatnajökuls og fjallahrings Hornafjarðar.
Stafafell í Lóni er gamall
kirkjustaður. Þar er í boði gisting í
gömlu íbúðarhúsi sem hefur verið endurbyggt í upprunalegri mynd. Þar er vel búið eldhús, matsala og
þvottaaðstaða fyrir gesti. Að auki er tjaldstæði með snyrti- og eldunaraðstöðu.
Náttúran umhverfis Stafafell er margbrotin.
Í Svínafelli er boðið upp á svefnpokagistingu í 6 smáhýsum
og 6 herbergjum. Í hverju smáhýsi er svefnpláss fyrir fjóra í tveimur tveggja
manna kojum. Vaskur og borðbúnaður fyrir fjóra er í hverju húsi, en auk þess
hafa allir gestir frjálsan aðgang að þjónustuhúsi. Þar er einnig salernisaðstaða og tvær sturtur. Í
Svínafelli er einnig boðið upp á
tjaldsvæði fyrir 100-150 manns og þvottaaðstöðu.
Hringlaga útisundlaug með tveimur heitum pottum er í Svínafelli.
Þjónustumiðstöð SKG ehf rekur tjaldsvæðið á Höfn. Tjaldsvæðið stendur á fallegum stað í bænum og þaðan er stutt ganga í alla helstu þjónustu. Tjaldsvæðið er rúmgott, góð og mjög snyrtileg aðstaða, aðgangur að rafmagni, interneti og losun fyrir ferðaklósett. Sérhönnuð stæði fyrir húsbíla og húsvagna.
Hjá Þjónustumiðstöð SKG ehf er hægt að bóka í ferðir á Vatnajökul, hvort sem er gönguferðir, jeppa- eða sleðaferðir. Golfvöllur og sundlaug eru í næsta nágrenni og hægt er að fá golfsett leigð á tjaldsvæðinu.
Ríki Vatnajökuls | 780 Hornafirði | TEL +354 478 1111 | info@rikivatnajokuls.is