Fjallaskálar - Veiði og fjallaskálar

Jöklarannsóknarfélagið

Skálar Jöklarannsóknafélagsins hafa verið byggðir með þarfir rannsókna á jöklum að leiðarljósi. Fyrstu skálarnir, á Breiðamerkursandi og í Esjufjöllum voru reistir sumarið 1951. Síðan hafa bæst við fleiri skálar en aðalaðstaða félagsins er á Grímsfjalli við Grímsvötn og í Jökulheimum við Tungnaárjökul. Alls á félagið 12 hús á 7 stöðum. Öll húsin utan eitt eru á eða við Vatnajökul, en staðsetning þeirra sést á korti sjá heimasíðu.

Sjá meira

Múlaskáli

Múlaskáli

Múlaskáli í eigu Ferðafélags Austur-Skaftafellinga er sunnan við Kollumúla í Lónsöræfum (64°33.200 - 15°09.077). Í Múlaskála er svefnpokapláss fyrir 30 manns og eldhús. Salerni og sturta er í sérhúsi við hliðina á skálanum. Skálinn er í stórbrotnu umhverfi og þaðan eru margar góðar gönguleiðir. Jeppavegur liggur frá Þórisdal í Lóni, yfir Skyndidalsá, inn Kjarrdalsheiði og inn að Illakambi. Um 40 mínútna gangur er að skálanum frá Illakambi. Margir kjósa að ganga frá göngubrúnni við Eskifell í Lóni, sem tekur 7 tíma.  


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica