Veitingar
Skonsurnar góðu
Skonsurnar góðu
Homemade
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

Veitingar

Boðið er upp á hlaðborð með heimilislegum veitingum

 

  • Morgunverðarhlaðborð alla daga milli kl. 7.30/8.00 - 9.30/10.00
  • Kvöldverðarhlaðborð í boði frá 1. júní – 31. ágúst, milli kl. 18.30 – 20.30
  • Hægt að panta máltíðir utan þess tíma.
  • Nestispakkar í boði. Panta þarf að kvöldi.
  • Jöklaís, heimalagaður ís, beint frá býli.
  • Vatn, gosdrykkir, léttvín, bjór og fleira selt í afgreiðslu. T
  • Tekið við VISA og MASTER kortum. Einnig debetkortum.

 

Sérstök áhersla er lögð á fjölbreytni þannig að allir geti fundið eitthvað við hæfi og að gestir standi saddir upp frá borðum.  Leitast er við að bjóða upp á afurðir sem framleiddar eru á býlinu eða í næsta nágrenni, hvort heldur eru mjólkurafurðir, kjöt, grænmeti eða fiskur.  Lögð er áhersla á að hafa ávallt heimabakað brauð á boðstólum og nýbakaðar skonsur og rabbarbarasulta eru einn af föstum liðum á morgunverðarborðinu. 

Nýr veitingasalur var tekinn í notkun 2011 og úr honum er afar víðsýnt m.a. til jöklanna og til Hafnar og Nesjafjalla.  Salurinn tekur um 65 manns í sæti.  Opið er út á verönd þar sem hægt er að njóta stórbrotinnar náttúru og útsýnis um leið og hvers konar veitinga.  Hlaðborð er í boði alla daga frá 1. júní – 31. ágúst. Utan þess tíma biðjum við gesti að panta kvöldverð fyrirfram

Síðdegishressing 

 

Hér er hægt að sjá myndir úr veitingasal



 
Skonsurnar góðu Borðstofa Veitingar Kýrnar á Brunnhól
Þetta vefsvæði byggir á Eplica