Saga Brunnhóls
Gistiheimili við jaðar jökuls
Gestgjafar eru Jón Kristinn Jónsson og Sigurlaug Gissurardóttir.
- Keyptu í félagi við aðra jarðirnar Árbæ og Brunnhól árið 1980.
- Fyrstu árin var rekinn hefðbundinn búskapur með kýr og kindur.
- Allur húsakostur endurbættur og kúm fjölgað.
- Byggt nýtt íbúðarhús í Árbæ 1981.
- Eignuðust báðar jarðirnar að fullu árið 1982.
- Byggt við fjósið og tekinn í notkun mjaltabás 1985 - 1987
- Hófu rekstur ferðaþjónustu árið 1986.
- Byggð viðbót við gistiheimilið – 5 herbergi og setustofur árið 1992.
- Lagðar línur að góðu aðgengi fyrir hreyfihamlaða.
- Byggður sólskáli við íbúðarhús sem nýttur er fyrir veitingasal árið 1994.
- Byggt nýtt anddyri og rúmbetri snyrtingar árið 1999.
- Yngri kynslóðin tekur yfir mjólkurframleiðslu við áramót 2004/2005.
- Byggð viðbót við gistiheimilið árið 2005, 11 herbergi auk íbúðar.
- Sífellt unnið að því að fegra umhverfi gistiheimilis með ýmsu móti.
Í félagi við hjónin Jóhannes og Vilborgu keyptu þau jarðirnar Árbæ og Brunnhól árið 1980 og tveim árum síðar þeirra hlut einnig. Þá var þar stunduð mjólkurframleiðsla en nýliðarnir komu sér einnig upp nokkrum fjárstofni. Sá þáttur búrekstrarins var síðan lagður af um miðjan tíunda áratuginn.
Árið 1986 hófu þau rekstur ferðaþjónustu í íbúðarhúsi á jörðinni Brunnhóli. Frá upphafi var mikil eftirspurn eftir þeirri þjónustu og óx vægi þess búrekstri smátt og smátt. Synir Sigurlaugar og Jóns Kristins tóku eftir því sem aldur og kraftar leyfðu virkan þátt í búrekstrinum með foreldrum sínum enda verkefnin næg.
Um áramótin 2004/2005 verða síðan kaflaskil. Þá tekur sonur þeirra Sæmundur Jón og sambýliskona hans Anne Manly Thomsen yfir mjólkurframleiðsluna. Samhliða er ráðist í enn frekari stækkun á ferðaþjónustunni á Brunnhól. Með góðri samvinnu við unga fólkið geta gestir áfram komist í snertingu við búskapinn í Árbæ. Jafnframt því hefur gestum verið gert kleyft að fylgjast með því sem fram fer í fjósinu í gegnum sjónvarp á herbergjunum.
Sigurlaug og Jón Kristinn hafa unnið ötullega að því í samstarfi við aðra að bæta aðgengi að áður lítt þekktum náttúruperlum s.s. með gönguleiðakortum, skipulagi áningarstaða og fl. Nú vinna þau að kaldri gestastofu og göngustígum fyrir framan Fláajökul í góðu samstarfi við Ferðaþjónustuna í Hólmi. (geta farið hér inn á heimasíðu Hólms) Sérstök áhersla er lögð á að gera hreyfihömluðum kleyft að fara um svæðið og a.m.k. hluta göngustíganna.

![[Málverkasýning Elísabetar Þorsteinsdóttur]](/media/auglysingar/MalverkasyningHnappur.jpg)
![[Barnastarf Menningarmiðstöðvar]](/media/auglysingar/BarnastarfHnappur.jpg)
![[Upplýsingamiðstöð]](/media/auglysingar/infoCenter.jpg)
![[Gönguleiðir í Ríki Vatnajökuls]](/media/auglysingar/GonguferdirHnappur.jpg)
![[Mennning og söfn]](/media/auglysingar/hnappursyningar.jpg)
![[Afþreying]](/media/auglysingar/SundlaugHnappur.jpg)



